Fyrstur á hesti yfir brúna
Mikill mannfjöldi kom saman við norðurenda nýju brúarinnar yfir Hvítá þegar umferð um hana var leyfð 1. desember…
Konur úr Biskupstungum búsettar í Hrunamannahreppi stóðu fyrir kaffiveitingum með mikilli prýði. Allir voru með bros á vör enda tilefnið ærið. Einn maður kom ríðandi til samkomunnar, Grímur Guðmundsson í Ásatúni kom á gæðingi sínum Glæsi frá Ásatúni. Grímur er einmitt formaður Hrossaræktarfélags Hrunamanna og því vel við hafi að hann yrði fyrstur manna til að ríða yfir brúnna. Á brúnni sem er 270 m. löng og 12 m. breið er afmörkuð braut með stálgrind sem ætluð er ríðandi, gangandi eða hjólandi fólki.Ekki er enn vitað hver framvinda mála verður við gerð reiðvegar með nýja veginum beggja vegna brúarinnar. Eitt er víst að góður og öruggur reiðvegur verður að koma sem fyrst meðfram þessari miklu samgöngubót sem nú er orðin að veruleika. Á myndinni er Grímur með Glæsi sinn að þiggja konfekt hjá Mörtu Hjaltadóttur bónda á Kópsvatini, Marta er ein hinnu dugmiklu Tungnakvenna sem stóðu fyrir veitingunum. ss
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári