Gæðingafimi á föstudaginn
Daníel Jónsson vann síðustu grein, slaktaumatölt
Á morgun, föstudaginn 25. mars verður keppt í gæðingafimi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Keppnin er haldin í Faxaborg, reiðhöllinni í Borgarnesi og hefst kl 19:00. Gæðingafimin er í boði KB og hvetjum við alla til að mæta í stúkuna og sjá hverja glæsisýninguna á fætur annarri.
Aðgangseyrir er 1000 kr og frítt er inn fyrir 12 ára og yngri.
Fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta í stúkuna þá verður viðburðinum streymt á alendis.tv
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH