Gæðingafimi í Eyrarmótaröðinni á Hólum – Myndband af sigurvegaranum

  • 13. febrúar 2020
  • Sjónvarp Fréttir

Í gærkvöldi fór fram annað mótið í  Eyrarmótaröðinni. Keppni fór fram í Þráarhöllinni á Hólum í Hjaltadal og að þessu sinni var keppt í gæðingafimi.  Keppt var eftir nýjum keppnisreglum LH um gæðingafimi. Í samtali Eiðfaxa við áhorfenda á staðnum að þá tókst mótið vel og margar góðar sýningar litu dagsins ljós.

Sigurvegari kvöldsins var Svanhildur Guðbrandsdóttir á hesti sínum Pitt frá Víðivöllum-Fremri með einkunnina 7,50. Í öðru sæti varð Vera Schneiderschen og Bragur frá Steinnesi og í því þriðja Guðrún Margrét Valsteinsdóttir og Óskar Þór frá Hvítárholti,

Styrktaraðili gæðingafiminnar var Draupnir en dómarar kvöldsins voru þau Mette Moe Mannseth og Þorsteinn Björnsson og fórst þeim verkið vel úr hendi.

Hér eru heildarniðurstöður kvöldsins.

1.Svanhildur Guðbrandsdóttir & Pittur frá Víðivöllum-Fremri – 7.50
2.Vera Evi Schneiderchen & Bragur frá Steinnesi – 7.39
3.Guðrún Margrét Valsteinsdóttir & Óskar Þór frá Hvítárholti – 7.24
4.Rósanna Valdimarsdóttir & Sprækur frá Fitjum – 6.97
5.Birta Ingadóttir & Fluga frá Oddhóli – 6.82
6.Pernille Wulff Harslund & Dögun frá Torfunesi – 6.79
7.Gunnlaugur Bjarnason & Erpir frá Blesastöðum 2A – 6.47
7.Kathrine Vittrup Andersen & Viska frá Hestkletti – 6.47
9.Svanhildur Guðbrandsóttir & Brekkan frá Votmúla – 6.37
10.Eva María Aradóttir & Kuldi frá Sandá – 6.09
11.Marie Holzemer & Stjörnu-Blesi frá Hjaltastaðahvammi – 6.03
12.Sandy Carson & Hlekkur frá Lækjamóti – 5.60
13.Guðný Margrét Siguroddsdóttir & Reykur frá Brennistöðum – 5.45
14.Ásdis Brynja Jónsdóttir & Straumur frá Steinnesi – 4.36
Eftir fyrstu tvær greinar stendur stigakeppnin þannig
1. Svanhildur með 26 stig
2. Vera með 22 stig
3-4. Ylfa með 8 stig
3-4. Guðrún Margrét með 8 stig
5-7. Rósanna með 7 stig
5-7. Lea  með 7 stig
5-7. Eva  með 7 stig
8. Birta með 6 stig
9-10. Fanney með 5 stig
9-10. Pernille með 5 stig
11-12. Birna með 4 stig
11-13. Gunnlaugur með 4 stig
11-13. Kathrine með 4 stig
14. Ásdís Brynja með 3 stig
15. Sigríður Vaka með 2 stig
16. Thelma Rut með 1 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar