Gæðingafimi í fyrsta sinn

  • 7. apríl 2015
  • Fréttir

Valdimar Bergstað mætir á Hugleik frá Galtanesi í gæðingafimikeppni KS-deildarinnar annað kvöld. Mynd/Sigurlína Magnúsdóttir

Ráslisti fyrir mót morgundagsins í KS-deildinni.

Keppt verður í gæðingafimi í KS-deildinni annað kvöld. Keppnin fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og hefst keppnin kl. 20:00.

„Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í þessari grein í KS-Deildinni og verður mjög spennandi að sjá hvernig tiltekst. Sést hefur til nokkura liða á æfingum í Svaðastaðahöllinni og greinilegt að mikið er lagt undir. Liða- og einstaklingskeppni deildarinnar er orðin mjög jöfn og verður hart barist um þau stig sem í boði eru.Keppnin verður sýnd í beinni útstendingu á heimasíðu reiðhallarinnar svadastadir.is gegn vægu gjaldi. Við hvetjum alla til að mæta í höllina á miðvikudagskvöldið og sjá þessa fyrstu keppni í gæðingafimi í KS-Deildinni,“ segir í tilkynningu frá KS-deildinni og meðfylgjandi er ráslisti mótsins.

1             Viðar Bragason – Lífland/Efri-Rauðalækur – Þytur frá Narfastöðum

2             Anna K. Friðriksdóttir – Íbess-Gæðingur –  Glaður frá Grund            

3             Gísli Gíslason – Draupnir/Þúfur – Trymbill frá Stóra-Ási

4             Fanney D. Indriðadóttir – TopReiter -Brúney frá Grafarkoti

5             Lilja Pálmadóttir – Hofstorfan/66°norður – Mói frá Hjaltastöðum

6             Líney M. Hjálmarsdóttir – Hrímnir – Þytur frá Húsavík                             

7             Guðmundur K Tryggvason – Lífland/Efri-Rauðalækur – Rósalín frá Efri Rauðalæk

8             Teitur Árnason – TopReiter –  Óskahringur frá Miðási

9             Valdimar Bergsstað – Hrímnir – Hugleikur frá Galtanesi                 

10           Mette Mannseth – Draupnir/Þúfur – Hnokki frá Þúfum

11           Jóhann B. Magnússon – Íbess-Gæðingur – Embla frá Þóreyjarnúpi

12           Bjarni Jónasson – Hofstorfan/66°norður  – Dynur frá Dalsmynni

13           Hallfríður Óladóttir – TopReiter – Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum

14           Þórarinn Eymundsson – Hrímnir – Taktur frá Varmalæk

15           Elvar Einarsson – Hofstorfan/66°norður – Gjöf frá Sjávarborg

16           Baldvin A Guðlaugsson – Lífland/Efri-Rauðalækur – Öngull frá Efri Rauðalæk

17           Hanna Rún Ingibergsdóttir – Íbess-Gæðingur -Nótt frá Sörlatungu

18           Þorsteinn Björnssson – Draupnir/Þúfur –  Króna frá Hólum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link