Gæðingafimi í Meistaradeild

  • 13. febrúar 2013
  • Fréttir
Gæðingafimi í Meistaradeild

 

JENS EINARSSON:

Hulda Gústafsdóttir mun ríða á vaðið í Gæðingafimi Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum, sem fram fer í Ölfushöllinni annað kvöld. 

Tuttugu og fjórir knapar eru skráðir til leiks og ríða allir prógrammið einu sinni í forkeppni. Tíu efstu ríða síðan prógrammið aftur og einkunn úr seinni umferðinni gildir til verðlauna.

Að venju eru nokkur áhugaverð pör á ráslistanum, sum þekkt frá í fyrra, eða úr öðrum greinum frá fyrri árum. Sigurður Sigurðarson keppir á Loka frá Selfossi, en þeir áttu góðan leik í fjórgangi fyrir þremur vikum.

Eyjólfur Þorsteinsson, sem varð efstur í fjórganginum, teflir nú fram Klerki frá Bjarnanesi, sem er þekktur fjórgangari og keppnishestur með ýktan fótaburð. Ólafur Ásgeirsson keppir á Andvarasyninum Hugleik frá Galtanesi, sem vakti athygli í fjórganginum, spennandi keppnishestur.

Olil Amble keppir á Kraflari frá Ketilsstöðum, en hún hefur þjálfað hann markvisst sem keppnishest í nokkur ár og náð prýðilegum árangri í tölti og fjórgangi. Árni Björn Pálsson keppir á Íslandsmeistarinum í tölti frá því í fyrra, Stormi frá Herríðarhóli, og Guðmundur Björgvinsson á Íslandsmeistarnum í fjórgangi frá í fyrra, Hrímni frá Ósi. 

Anna Valdimarsdóttir keppir á Króki frá Ytra-Dalsgerði, sem ræktandi hans og eigandi hefur lýst sem „nútímahesturinn holdi klæddur“. Verður spennandi að sjá hvernig þessi stóri og mikli ahliða hestur leysir þetta verkefni í reiðhöllinni, en eitt er víst að hann er vel þjálfaður hjá Önnu. Artemisia Bertus er ekki skráð til leiks, en hún varð efst í Gæðingafiminni í fyrra á Korg frá Ingólfshvoli.

Dómarar í gæðingafiminni verða sex að þessu sinni, þrír sem dæma æfingarnar og þrír sem dæma gangtegundirnar. Dómarar sem dæma æfingarnar eru þau Páll Bragi Hólmarsson, Sigríður Pjétursdóttir og Elsa Magnúsdóttir en dómarar sem dæma gangtegundir eru þeir Sigurður Ævarsson, Magnús Sigurjónsson og Steindór Guðmundsson.

Ráslisti fyrir Gæðingafimi 2013:

 

Hulda Gústafsdóttir

Ketill frá Kvistum

Anna Björk Ólafsdóttir

Reyr frá Melabergi

John K. Sigurjónsson

Kraftur frá Blesastöðumn 1A

Siguður Sigurðarson

Loki frá Selfossi

Þórdís Erla Gunnarsdóttir

Ösp frá Enni

Elvar Þormarsson

Skuggi frá Strandarhjáleigu

Jakob S. Sigurðsson

Eldur frá Köldukinn

Eyjólfur Þorsteinsson

Klerkur frá Bjarnanesi

Ævar Örn Guðjónsson

Veigur frá Eystri-Hól

Daníel Ingi Smárason

Silfur-Daddi frá Lækjarbakka

Ólafur B. Ásgeirsson

Hugleikur frá Galtanesi

Ragnar Tómasson

Sleipnir frá Árnanesi

Olil Amble

Kraflar frá Ketilsstöðum

Reynir Örn Pálmason

Baldvin frá Stangarholti

Bergur Jónsson

Ljóni frá Ketilsstöðum

Árni Björn Pálsson

Stormur frá Herríðarhóli

Anna S. Valdimarsdóttir

Krókur frá Ytra-Dalsgerði

Guðmundur F. Björgvinsson

Hrímnir frá Ósi

Viðar Ingólfsson

Már frá Feti

Sigurður V. Matthíasson

Svalur frá Litlu-Sandvík

Gústaf Ásgeir Hinriksson

Naskur frá Búlandi

Sigurbjörn Bárðarson

Jarl frá Mið-Fossum

Þorvaldur Árni Þorvaldsson

Stjarna frá Stóra – Hofi

Sylvía Sigurbjörnsdóttir

Héðinn Skúli frá Oddhóli

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link