Gæðingafimi Meistaradeildar Suðurlands
Birtir hafa verið ráslistar fyrir Gæðingafimi Meistaradeildar Suðurlands í hestaíþróttum, sem fram fer annað kvöld, fimmtudag, í Ölfushöllinni. Gæðingafimin er byggð á hugmynd Eyjólfs Ísólfssonar, sem var fyrst kynnt á FM1993 á Vindheimamelum. Í þeirri keppni sigraði með glæsibrag Einar Öder Magnússon á Oddi frá Selfossi.
Hugmyndin að baki Gæðingafiminnar er að blanda saman í eina keppni gangtegundum íslenska gæðingsins og fimiæfingum – á á frjálsum vangi. Keppnin er ekki riðin á hringvelli, heldur hefur keppandinn allt rými vallarins, í þessu tilfelli allt reiðgólf Ölfushallarinnar, til umráða.
Það hefur tafið fyrir þróun Gæðingafiminnar að smekkur fólks er misjafn á því hvort eigi að vega meira í keppninni, mýkt , fegurð og samspil, eða fótlyfta og vígalegheit. Greinilegt er að dómarar eru oft á tíðum ekki með á hreinu eftir hverju skal fara. Fallegasta prógram sem riðið hefur verið í Gæðingafimi í Ölfushöll var framið af Jakobi Sigurðssyni á stóðhestinum Auði frá Lundum, sem byggðist fyrst og fremst á mýkt, fegurð og samspili manns og hests.
Hér að neðan er ráslistinn fyrir gæðingafimina. Eins og sjá má tefla margir knapar fram nýjum hestum.
Rásröð Nafn Lið Hestur
1 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Geisli frá Svanavatni
2 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu
3 Vignir Siggeirsson Hrímnir Heljar frá Hemlu
4 Bergur Jónsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Simbi frá Ketilsstöðum
5 Anna Valdimarsdóttir Málning / Ganghestar Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu
6 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga Vígar frá Skarði
7 Olil Amble Lýsi
8 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Árborg frá Miðey
9 Sigurður Sigurðarson Lýsi Hljómur frá Höfðabakka
10 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Þulur frá Hólum
11 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu
12 Sigurður Vignir Matthíasson Málning / Ganghestar Máttur frá Leirubakka
13 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Kiljan frá Steinnesi
14 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Grýta frá Garðabæ
15 Viðar Ingólfsson Hrímnir Röskur frá Sunnuhvoli
16 Sólon Morthens Spónn.is Frægur frá Flekkudal
17 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Jarl frá Mið-Fossum
18 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal
19 Henna Johanna Sirén Spónn.is Gormur frá Fljótshólum 3
20 Valdimar Bergstað Málning / Ganghestar Leiknir frá Vakurstöðum
21 Snorri Dal Hrímnir Helgi frá Stafholti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH