Gæðingafiminefnd LH óskar eftir athugasemdum
Á liðnu keppnisári hafa Gæðingafimireglur LH verið notaðar á allmörgum mótum. Reglurnar eru í mótun og nú í lok keppnisársins mun starfshópur um Gæðingafimi LH rýna reglurnar, meta hvort einhverju þurfi að breyta og hverju. Stefnt er á að gefa út endurskoðaðar reglur fyrir upphaf keppnisársins 2022.
Starfshópurinn óskar eftir athugasemdum frá öllum sem hafa kynnt sér reglurnar, hvort sem það eru keppendur, dómarar eða áhorfendur, um hverju mætti breyta eða bæta til að gera keppnisgreinina enn skemmtilegri.
Tekið er á móti athugasemdum með sérstöku eyðublaði á vef LH til 30. september. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á netfangið [email protected].
Landsamband hestamanna hvetur alla sem hafa eitthvað til málanna að leggja að senda inn athugasemdir.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt