Gæðingakeppni fyrir byrjendur
Það er gott að byrja einhvers staðar og svo gæti farið að hægt verði að keppa í C-flokki gæðinga. Loki frá Selfossi og Sigurður Sigurðarson eru ríkjandi Landsmótsmeistarar í B-flokki gæðinga.
Gæðingadómarafélag Íslands, GDLH, sendir frá sér eftirfarandi tilkynningu:
„Á síðasta landsþingi var samþykkt að prufukeyra C-flokk í gæðingakeppni. Flokkur þessi er ætlaður byrjendum og lítið keppnisvönu fólki til þess að byrja að spreyta sig í gæðingakeppninni. Mótshaldarar hafa fengið tölvupóst og hvattir til þess að bjóða upp á þennan flokk á mótum sínum í vor. Þetta er frábært tækifæri til þess að fjölga keppendum í gæðingakeppni hérlendi og erlendis og kynna þá frábæru keppni sem gæðingakeppnin er.“
Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um C flokk.
C – Flokkur
Knapi og hestur sem keppir í C- flokki , getur ekki keppt líka í A og B flokk á sama móti.
C – flokkur gæðinga
- Hringvöllur : Riðnir skulu tveir hringir og sýnt fet , tölt og/eða brokk, og stökk.
- Bein braut : Riðnar skulu 4 ferðir. (c.a 4×80 metrar)
- Sýni keppandi bæði brokk og tölt er einkunn fyrir betri gangtegundina notuð.
- Einkunnir skulu gefnar eftir þeirri reglu að talan 5 er grunntala þ.e. lægsta tala í einkunnargjöf og jafngildir því núlli.
Einkunnir skal reikna samkvæmt eftirfarandi kvarða:
C- flokkur
Atriði Einkunn Vægi
1. Fetgangur 5 – 10 1
2.Brokk og/ eða tölt 5 – 10 1
3. Stökk 5-10 1
4. Vilji 5 – 10 1
5. Fegurð í reið 5 – 10 1
Deilitala dómara til að fá aðaleinkunn keppanda er 5. Séu allar einkunnir lesnar upp er deilt í dómpalli með 15 séu 3 dómarar að dæma, en 25 séu fimm dómarar að dæma.
Úrslit C – flokkur
- Sýna skal fet allt að einum hring upp á hvora hönd.
- Tölt og/eða brokk skal sýna minnst tvo hringi til hvorrar handar.
- Knapi þarf að velja hvort hann sýnir tölt eða brokk í úrslitum, hann getur ekki sýnt bæði.
- Stökk skal sýna tvo spretti, einn í einu, með hraðamun og mjúkri niðurhægingu.
- Stökk Keppendur safnist saman á skammhlið / eða enda brautar ef notuð er bein braut og komi sér saman um, í samráði við stjórnanda, í hvora áttina skal ríða.
- Eftir hverja gangtegund er gefin einkunn og í lokin fyrir vilja og fegurð í reið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH