Gæðingakeppni Trausta

  • 23. júlí 2015
  • Fréttir
Verður á Þorkelsvelli við Laugarvatn.

Gæðingakeppni Hestamannafélagsins Trausta verður haldin á Þorkelsvelli við Laugarvatn laugardaginn 25. júlí n.k. Keppt verður í öllum aldursflokkum ásamt A og B flokki gæðinga og 100m skeiði 
Keppt verður tölti T3 ef þátttaka verður næg. Mótið hefst kl. 11:00 með setningu formanns og verður dagskrá eftirfarandi:
11:10 B-flokkur gæðinga.
12:00 A-flokkur gæðinga.
12:30 Matarhlé
13:30 Barnaflokkur
14:00 Unglinga/ungmennaflokkur
15:00 T3-töltkeppni.
15:30 Hlé
16:00 Skeið
16:45 Úrslit
-Börn
-Unglingar/ungmenni
-A/B flokkur
-Tölt
Knapi og hestur mótsins valinn.
ATH. Tímasetningar eru háðar skráningu í flokkana, en mótið verður sett kl 11 og fyrsta grein hefst 11:10
Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 24. júlí fyrir kl. 22:00 á netfangið[email protected] 
Í skráningu verður að koma fram nafn og kennitala knapa og IS númer á hesti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link