Gæðingaleikar Sleipnis!

  • 29. febrúar 2020
  • Fréttir

Glóðafeykir frá Halakoti og Einar Öder Magnússon sigruðu B-flokk á LM 2012

Þá er komið að 2. vetrarmóti Sleipnis og verður það eins og áður var sagt í samstarfi við Gæðingadómarfélaga Íslands en keppt verður í B- flokki og A- flokki. En þess má geta að þetta mót fellur undir stigakeppninna á mótunum þannig það er til mikils að vinna. Það eru Furuflís og Byko sem eru aðalstyrktaraðilar mótsins.

Athuga skal að riðið er eftir þul !!

Mótið hefst klukkan 12:00 laugardaginn 7.mars

Skráning er frá 1. mars til miðnættis 5. mars.!!!

Flokkarnir verða

 

Skráning fer í gengum SPORTFENG og velja verður Sleipni sem mótshaldara til að skrá og finna mót.

Ef vandræði  eru við skráningu endilega sendið póst á [email protected]

Pollaflokkur (óbreyttur) skráning á staðnum milli 11:00 – 11:30

Barnaflokkur 

Unglingaflokkur

Ungmennaflokkur

Áhugamannaflokkur 2 (til að skrá sig í þennan flokk skal velja C1 flokk á Sportfeng)

Áhugamannaflokkur 1 (til að skrá sig í þennan flokk skal velja C flokk á Sportfeng)

Heldri menn og konur (55+) (til að skrá sig í þennan flokk skal velja C1 flokk þar sem stendur Gæðingakeppni 2 á Sportfeng)

Opinn flokkur ( Heitir B-Flokkur)

 

Sérstök forkeppni verður riðin í öllum flokkur nema Pollaflokki.

 

Barnaflokkur 

Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,

  • Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu
  • Tveir hringir brokk og/eða tölt
  • Tvær umferðir stökk, betri ferð gildir til einkunnar
  • Stjórnun og áseta x 2
  • Deilitala fyrir dómara er 4 

Unglingaflokkur

Þrír til  fimm hestar inni á hringvellinum í einu,

  • Tveir hringir hægt tölt.
  • Tveir hringir brokk frjáls hraði.
  • Tvær umferðir yfirferðargangur á langhliðum, annað hvort tölt eða brokk.
  • Stjórnun og áseta
  • Deilitala fyrir dómara er 4.
  •  

Ungmennaflokkur

Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,

  • Tveir hringir hægt tölt.
  • Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
  • Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
  • Fegurð í reið
  • Vilji
  • Deilitala fyrir dómara er 5.

 

Áhugamannaflokkur 2

Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,

  • Fet
  • Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
  • Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
  • Fegurð í reið
  • Vilji
  • Deilitala fyrir dómara er 5.

 

Áhugammanflokkur 1

Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,

  • Tveir hringir hægt tölt.
  • Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
  • Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
  • Fegurð í reið
  • Vilji
  • Deilitala fyrir dómara er 5.

 

Heldri menn og konur (55+)

Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,

  • Fet
  • Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
  • Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
  • Fegurð í reið
  • Vilji
  • Deilitala fyrir dómara 5

 

 

 

 

Opinn flokkur

Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,

  • Tveir hringir hægt tölt.
  • Tveir hringir brokk frjáls hraði.
  • Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
  • Vilji x 2
  • Fegurð í reið x 2.
  • Deilitala fyrir dómara er 7.

 

A-Flokkur gæðinga

Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu.

  • Tveir hringir tölt x 2
  • Tveir hringir brokk frjáls hraði
  • Ein umferð skeið, einn og einn í einu x 2
  • Vilji x 2

 

 

Taka skal fram uppá hvora hönd er riðið við skráningu!

 

Skráningargjöld :

  • Frítt fyrir börn og polla
  • Unglingar kr.1000
  • Ungmenni kr.1500
  • Fullorðnir kr.2000.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link