Gæðingamót Dreyra, Faxa, Glaðs, Skugga og Snæfellings,

  • 31. maí 2012
  • Fréttir
Gæðingamót Dreyra, Faxa, Glaðs, Skugga og Snæfellings,

Úrtaka fyrir landsmót verður haldin sameiginlega fyrir hestamannafélögin Dreyra, Faxa, Glað, Skugga og Snæfelling, undir stjórn Skugga, laugardaginn 09. júní næstkomandi, á félagssvæði Skugga, við Vindás í Borgarnesi. Mótið hefst kl. 10:00.

Athygli er vakin á því að einungis verður forkeppni riðin, en ekki úrslit í úrtökunni.
 
Skráning allra félaganna verður sameiginleg og skal send á netfangið: [email protected] (athugið að ef ekki kemur til baka staðfestingarpóstur á móttöku skráningar, hefur skráning ekki heppnast).  Við skráningu þarf að koma fram; IS númer hests, nafn og kt. knapa, nafn og kt. eiganda, keppnisgrein, félag sem keppt er fyrir og upp á hvora hönd skal riðið. (Ath. Eigandi hests verður að vera skráður eigandi í WorldFeng þegar skráning fer fram). Skráningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 22:00, miðvikudaginn 06. júní, n.k.
 
Skráningargjöld eru: Kr. 4.000,- fyrir skráningu í flokkum fullorðinna, ungmenna og unglinga (3.000,- fyrir annan hest).  Skráningargjöld eru: Kr. 1.000,- fyrir barnaflokk. Skráningargjöld þurfa að hafa borist fyrir lok skráningarfrests (kl. 22:00, 06.06.12) og greiðast inn á reikning:  0326-13-004810, kt: 481079-0399, senda þarf kvittun á netfangið: [email protected] (setja þarf nafn hests sem skýringu).
 
Keppt verður í eftiröldum greinum:
A flokki gæðinga  –  B flokki gæðinga  –  Barnaflokki  –  Unglingaflokki  –  Ungmennaflokki.
 
Unnt verður að leigja stíur fyrir keppnishesta í reiðhöllinni Faxaborg, samdægurs eða kvöldið áður og er leigugjald pr. hest kr. 2.000.-.  Pantanir á stíum hjá Pétri á netfanginu: [email protected]
 
Áætlað er að halda knapafund með mótstjórn, kl. 09:00 um morguninn. Völlurinn verður opinn til æfinga dagana fyrir mót í samráði við mótanefnd Skugga, en ekki verður unnt að æfa eftir kl. 18:00, kvöldið fyrir mótsdag.
 
Nánari upplýsingar um mótið gefur Sigurður Stefánsson, form. mótan. Skugga,  í síma: 848-8010.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link