Gæðingamót Fáks og Landsmótsúrtaka
Gæðingamót Fáks og úrtaka fyrir Landsmót 2022 fer fram dagana 26.-29. maí næstkomandi á Hvammsvellinum í Víðidal. Mótið er lokað þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða. Skráning er opin og stendur til og með mánudagsins 23. maí.
Boðið er upp á tvær umferðir og verður fyrirkomulagið eftirfarandi:
- Fimmtudagur 26. maí – fyrri umferð, allir gæðingaflokkar (nema C-flokkur).
- Föstudagur 27. maí – tölt og skeið
- Laugardagur 28. maí – seinni umferð, allir gæðingaflokkar (nema flokkur).
- Sunnudagur 29. maí – Úrslit: Árangur úr fyrri umferð gildir til úrslita.
Skráningar:
- Mótið heitir: Gæðingamót Fáks & Landsmótsúrtaka
- Seinni umferð úrtöku heitir: Fákur – seinni umferð Landsmótsúrtöku
- Skráning í seinni umferð er valkvæð og verður skráning opin til kl. 12.00 föstudaginn 28. maí.
- Ekki er hægt að skrá hesta eða knapa í seinni umferð hafi þeir ekki tekið þátt í þeirri fyrri.
- Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr báðum umferðum.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
- A flokkur gæðinga – kr. 6.900
- B flokkur gæðinga – kr. 6.900
- C flokkur gæðinga (ekki LM grein, aðeins fyrir minna vana, sjá reglur LH) – kr. 6.900
- Ungmennaflokkur – kr. 5.000
- Unglingaflokkur – kr. 5.000
- Barnaflokkur – kr. 5.000
- Pollaflokkur – skráning hér
- 100m Skeið – kr. 6.000
- 150m Skeið – kr. 6.000
- 250m Skeið – kr. 6.000
- Tölt T1 – kr. 7.500
Mótanefnd Fáks
skraning@fakur.is
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“
Framboð af gistingu í Skagafirði meðan á Landsmóti hestamanna stendur!
Drífandi og Bella hæst dæmd á Romme