Gæðingamót Faxa og Skugga
Hestamannafélögin Faxi og Skuggi halda gæðingamót laugardaginn 24. maí n.k. Er hér um sameiginlegt mót félaganna að ræða. Keppt verður í barnaflokki – unglingaflokki – ungmennaflokki – B flokki gæðinga og A flokki gæðinga. Átta efstu keppendur í hverjum flokki keppa til úrslita. Jafnframt fer fram Hryssukeppni Faxa skv. reglum sem um þá keppni gilda. Nánari upplýsingar um keppnisgreinar og skráningar birtast í næstu viku en opnað verður fyrir skráningar fimmtudaginn 15. maí.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV