Gæðingamót Geysis, Loga, Smára og Trausta

  • 31. maí 2012
  • Fréttir
Gæðingamót Geysis, Loga, Smára og Trausta

Hestamannafélögin Geysir, Logi, Smári og Trausti munu halda sameiginlega úrtöku á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 9-10 júní. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki,  A- og B-flokki gæðinga. Það verða tvær umferðir fyrir þá sem vilja eins og venjulega, allir verða að fara fyrri umferð og svo þeir sem vilja geta farið aftur í seinni umferð.

 
Skráningargjald verður 4000 kr í ungennaflokki, A- og B-flokki. Frítt verður í barnaflokk og unglingaflokk. Skráningarfrestur rennur út mánudaginn 4.júní kl 23:59. Skráning fyrir Geysisfélaga fer fram á netinu á slóðinni skraning.is  og er skráning hafin þar, greiðsla fer fram um leið og skráning. Skráning fyrir félagsmenn í Loga, Smára og Trausta fara fram hjá hverju félagi fyrir sig, nánar auglýst í hverju félagi. Skráning í seinni umferð verður svo að loknum hverjum flokki í fyrri umferð og verður sama skráningargjald í seinni umferð, eða  4000 kr í ungennaflokki, A- og B-flokki. Frítt verður í barnaflokk og unglingaflokk, greiðist það á staðnum.
 
Aðgangseyrir að mótinu er 1000 kr, frítt fyrir knapa og börn 13 ára og yngri. Mun aðgangseyrir renna í barna og unglingastarf hestamannafélaganna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link