Gæðingamót Geysis

  • 20. maí 2022
  • Fréttir
Mótið er opið öllum

Helgina 28-29.maí veður haldið opið Gæðingamót Geysis á Rangárbökkum við Hellu. Mótið er opið öllum en árangur af mótinu hjálpar engum inná Landsmót nema þetta er frábær æfing fyrir alla þá sem vilja keppa í gæðingakeppni.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
(úrslit verða einungis í þeim flokki þar sem þátttaka er fleiri en 6.)
Barnaflokki
Unglingaflokki
A-flokki Ungmenna
B-flokki Ungmenna
A-flokki Gæðinga Áhugamanna
B-flokki Gæðinga Áhugamanna
A-flokki Gæðinga Meistara
B-flokki Gæðinga Meistara

Öll úrslit verða bara með 6 knöpum.

Bara bikar í efsta sætið í öllum keppnisgreinum nema barnaflokki og unglingaflokki þar verður verðlaunað fyrir öll úrslitasæti.

Skráning er hafin og lýkur þriðjudaginn 24.maí. Öll skráning fer fram inná sportfeng. Öll afskráning eða vandræði fara í gegnum síma 846-5284 Jónína Lilja

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link