Gæðingamót Hrings
Mótanefd Hrings auglýsir Gæðingamót Hring sem jafnframt er úrtökumót fyrir landsmót 2012.
Þá verður einnig boðið upp á opið mót í Tölti og Skeiðgreinum. Skráningar fara fram á heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net og skal lokið fyrir miðvikudag 30.mai. kl 20:00. Skráningargjald er eftirfarandi: Ungmenni og fullorðnir kr 2500 á fyrstu skráningu en 2000 á næstu skráningar. Börn og unglingar kr 1500 á fyrstu skráningu en 1000 á næstu.
Skráningargjöld skulu greidd á reikning félagsins fyrir kl 12:00 föstudag 1.júní annars telst skráning ógild: Reiknisnúmer: 1177-26-175 – skýring – vinsamlegast sendir kvittun á [email protected]
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Gæðingamót Hrings
- A-flokkur
- B-flokkur
- Barnaflokkur
- Unglingar
- Ungmenni
Opin keppni
- Tölt– Forkeppni
- 100m skeið – Fljúgandi start
- 150m skeið
- 250m skeið
Þetta kemur fram í tilkynningu frá hestamannafélaginu Hring.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum