Gæðingamót og unghrossakeppni

  • 27. maí 2015
  • Fréttir
Skráning á gæðingamót Spretts hefst í dag.

Gæðingamót Spretts fer fram helgina 5-7 júní. „Boðið verður uppá eftirfarandi flokka: A-flokk, B-flokk, barnaflokk, unglingaflokk, ungmennaflokk (ef næg þátttaka næst), B-flokk áhugamanna, A-flokk áhugamanna auk þess ætlum við að bjóða uppá C-flokk fyrir lítið sem ekkert keppnisvana. Skráning í C-flokkinn er undir annað. Einnig bjóðum við uppá 100m , 150m, 250m skeið og 300m stökk og Tölt T1 sem verður opið öllum.

Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður flokka eða sameina flokka ef svo ber undir vegna meðal annars dræmrar þátttöku. Einnig bjóðum við uppá polla flokk ef veður leyfir. Skráning í þann
flokk fer fram í hádeginu á sunnudeginum. Þeir sem vilja skrá sig í áhugamannaflokkana sendið mail á
[email protected]. Enn öll skráning á mótið fer fram á www.sportfengur.com.

Vinsamlegast sendið staðfestingu á greiðslum á [email protected]. Ef vandræði koma upp eða þið hafið einhverjar spurning endilega sendið á [email protected].

Ræktunarfélag Spretts ætlar að halda unghrossakeppni í tengslum við Gæðingamót Spretts og skráning fer fram á e-mailið [email protected]. Is  Nr hests og kt knapa og nafn,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd og Ræktunarfélagi Spretts.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link