Gæðingamót Sörla
Gæðingamót fer fram á félagssvæði Sörla á Sörlastöðum dagana 29. – 31. maí nk.
Boðið verður upp á eftirfarandi keppnisgreinar:
- A flokkur gæðinga
- A flokkur gæðinga áhugamenn
- B flokkur gæðinga
- B flokkur gæðinga áhugamenn
- Pollar teymdir
- Pollagæðingakeppni
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- Unghross (5 vetra og yngri)
Ekki verður boðið upp á tölt né skeiðgreinar á þessu móti en mótanefnd hefur ákveðið að bjóða upp á slíkt mót í júní. Að venju ríða áhugamenn í A og B flokki með atvinnumönnum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit laugardaginn 31. maí. Glæsileg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður gæðingur mótsins valinn sem og knapi mótsins.
Reglur vegna úrtöku:
Á þessu móti fer fram úrtaka Sörla fyrir Landsmót 2014 því verða allir keppnishestar að vera í eigu Sörlafélaga. Eigandinn verður að vera skuldlaus við félagið. Að auki verða knapar í yngri flokkum að vera skráðir í Sörla og hafa greitt félagsgjöld. Knapar í fullorðnisflokkum verða vera skráðir í hestamannafélag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH