Hestamannafélagið Sörli Gæðingamót Sörla og fljúgandi skeið

  • 30. maí 2024
  • Fréttir

Goði frá Bjarnarhöfn og Daníel Jónsson á Landsmóti 2022 þeir leyða nú A-flokk á gæðingamóti Sörla Ljósmynd: Henk Peterse

Fyrri umferð úrtöku fór fram í gær

Gæðingamót hestamannafélagsins Sörla og úrtaka fyrir Landsmót fer fram á Sörlavöllum dagana 29. maí – 2. júní á Hraunhamarsvellinum við Sörlastaði.

Boðið verður upp á tvær umferðir í úrtökunni en fyrri umferðin fór fram i gær og sú seinni á morgun.

Á laugardaginn, 1. júní, verður haldið 100 m. skeið sem er öllum opið en að sögn mótshaldara er skeiðbrautin í toppstandi eins og sjá má á því að besti tími ársins hingað til er settur þar af Ingibergi Árnasyni og Sólveigu frá Kirkjubæ, 7,30 sekúndur. Skráning fer fram á sportfeng og líkur henni á föstudagskvöld.

Að lokinni fyrri umferð er það helst að frétta að Goði frá Bjarnarhöfn er efstur í A-flokki með 8,66 sýndur af Daníel Jónssyni. Efst í B-flokki er Friðdís frá Jórvík sýnd af Adolfi Snæbirnssyni með 8,54 í einkunn.

Una Björt Valgarðsdóttir er með tvö efstu hross i barnaflokki, Fanndís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum leiða unglingaflokk með 8,60 í einkunn og i B-flokki ungmenna er það Sigurður Dagur Eyjólfsson og Flugar frá Morastöðum sem efstir eru með 8,47 í einkunn.

Niðurstöður úr fyrri umferð má sjá hér fyrir neðan.

 

A flokkur
Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Goði frá Bjarnarhöfn Daníel Jónsson 8,66
2 Forni frá Flagbjarnarholti Hinrik Bragason 8,57
3 Djarfur frá Litla-Hofi Sara Dís Snorradóttir 8,48
4 Léttir frá Þóroddsstöðum Viðar Ingólfsson 8,48
5 Taktur frá Hrísdal Anna Björk Ólafsdóttir 8,47
6 Hrollur frá Votmúla 2 Alexander Ágústsson 8,45
7 Gimsteinn frá Víðinesi 1 Snorri Dal 8,45
8 Kraftur frá Eystra-Fróðholti Hanna Rún Ingibergsdóttir 8,39
9 Viktor frá Efri-Hömrum Eyjólfur Þorsteinsson 8,28
10 Ísing frá Harðbakka Darri Gunnarsson 8,25
11 Bogi frá Brekku Jóhannes Magnús Ármannsson 8,23
12 Samviska frá Bjarkarhöfða Aníta Rós Róbertsdóttir 8,20
13 Týr frá Miklagarði Bjarni Sigurðsson 8,13
14 Ísabella frá Silfurmýri Hinrik Þór Sigurðsson 8,04
15 Röst frá Efri-Fitjum Hinrik Þór Sigurðsson 8,02
16 Engill frá Ytri-Bægisá I Katla Sif Snorradóttir 8,01
17 Strengur frá Húsanesi Atli Guðmundsson 7,96
18 Víga-Barði frá Kolgerði Anna Björk Ólafsdóttir 7,94
19 Týr frá Efsta-Seli Jóhannes Magnús Ármannsson * 7,91
20 Mist frá Einhamri 2 Ingunn Rán Sigurðardóttir 7,63

 

B flokkur
Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Friðdís frá Jórvík Adolf Snæbjörnsson 8,54
2 Höfðingi frá Miðhúsum Sindri Sigurðsson 8,52
3 Gleði frá Efri-Brúnavöllum I Katla Sif Snorradóttir 8,48
4 Þór frá Hekluflötum Ylfa Guðrún Svafarsdóttir 8,47
5-6 Óskar frá Litla-Garði Eyjólfur Þorsteinsson 8,46
5-6 Postuli frá Geitagerði Ylfa Guðrún Svafarsdóttir 8,46
7 Toppur frá Sæfelli Friðdóra Friðriksdóttir 8,44
8 Draumur frá Breiðstöðum Darri Gunnarsson 8,41
9 Gutti frá Brautarholti Inga Kristín Sigurgeirsdóttir 8,40
10 Rjúpa frá Þjórsárbakka Eyjólfur Þorsteinsson 8,38
11 Jaðraki frá Þjórsárbakka Eyjólfur Þorsteinsson 8,33
12 Sjöfn frá Aðalbóli 1 Hinrik Þór Sigurðsson 8,32
13 Tíberíus frá Hafnarfirði Páll Bragi Hólmarsson 8,31
14 Karítas frá Votmúla 1 Brynhildur Sighvatsdóttir 8,29
15-16 Meistari frá Hafnarfirði Jónas Aron Jónasson 8,26
15-16 Sóllilja frá Kerhóli Þór Jónsteinsson 8,26
17 Mídas frá Silfurmýri Höskuldur Ragnarsson 8,23
18 Loki frá Silfurmýri Höskuldur Ragnarsson 8,15
19 Dáð frá Skógarási Smári Adolfsson 8,15
20 Fókus frá Hafnarfirði Smári Adolfsson 8,14
21 Bliki frá Fossi 3 Guðlaug Rós Pálmadóttir 8,13
22 Dagur frá Kjarnholtum I Aníta Rós Róbertsdóttir 8,02
23 Huldar frá Efri-Hömrum Hafþór Hreiðar Birgisson 7,98
24 Björk frá Áskoti Bjarni Sigurðsson 7,33
25 Ósk frá Silfurmýri Hinrik Þór Sigurðsson 0,36

 

Barnaflokkur gæðinga
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Una Björt Valgarðsdóttir Agla frá Ási 2 8,57
2 Una Björt Valgarðsdóttir Heljar frá Fákshólum 8,42
3 Ásthildur V. Sigurvinsdóttir Sigurey frá Flekkudal 8,22
4 Karítas Hlíf F. Friðriksdóttir Melódý frá Framnesi 8,14
5 Hjördís Antonía Andradóttir Gjöf frá Brenniborg 8,11
6 Þórunn María Davíðsdóttir Garún frá Kolsholti 2 8,05
7 Magdalena Ísold Andradóttir Bliki frá Þúfu í Kjós 8,01
8 Ásthildur V. Sigurvinsdóttir Hrafn frá Eylandi 8,00
9 Guðbjörn Svavar Kristjánsson Þokkadís frá Markaskarði 7,96
10 Elísabet Benediktsdóttir Glanni frá Hofi 7,90
11 Elísabet Benediktsdóttir Astra frá Köldukinn 2 7,20

 

Unglingaflokkur gæðinga
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum 8,60
2 Árný Sara Hinriksdóttir Moli frá Aðalbóli 1 8,48
3 Helgi Freyr Haraldsson Hrynjandi frá Strönd II 8,32
4 Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir Gormur frá Köldukinn 2 8,25
5 Sara Sigurlaug Jónasdóttir Lukka frá Laugabóli 8,22
6 Sofie Gregersen Vilji frá Ásgarði 7,91
7 Sara Sigurrós Hermannsdóttir Tristan frá Árbæjarhjáleigu II 0,00
B flokkur ungmenna
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sigurður Dagur Eyjólfsson Flugar frá Morastöðum 8,47
2 Sara Dís Snorradóttir Nökkvi frá Syðra-Skörðugili 8,45
3 Júlía Björg Gabaj Knudsen Póstur frá Litla-Dal 8,37
4 Sigurður Dagur Eyjólfsson Flinkur frá Áslandi 8,33
5 Sigríður Inga Ólafsdóttir Draumadís frá Lundi 8,33
6 Jessica Ósk Lavender Eyrún frá Litlu-Brekku 8,29
7 Kristján Hrafn Ingason Úlfur frá Kirkjubæ 8,27
8 Eliza-Maria Grebenisan Darri frá Einhamri 2 7,90
9 Ingunn Rán Sigurðardóttir Skuggi frá Austurey 2 7,90
10 Karen Ósk Gísladóttir Dan frá Reykjavík 7,71

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar