Gæðingar og súperknapar á Stórsýningu Fáks
Stórsýning Fáks verður haldin í reiðhöllinni í Víðidal í kvöld.
“Á Stórsýningu Fáks á laugardagskvöldið munu gæðingar dansa um salinn, s.s. Barði frá Laugavöllum sem ber titlinn hæst dæmda kynbótahrossið í eigu Fáksmanns árið 2011. Barði mun ekki bara sýna fótaburð og glæsileika heldur einnig…….. (kemur í ljós á sýningunni). Faglegar sýningar frá m.a. U 21 hópnum, Skessunum og unglingum í Fáki.
„Gamlir“ knapar segjast ætla að eiga „come back“ á sýningunni og verður gaman að sjá hverjir það eru. Glæsilegar hryssur eins og Elja frá Einhamri og Hamborg frá Feti sem og kraftmikil skeiðsýning. Landsmótssigurvegarar Fáks í gegnum tíðina í A og B-flokki gæðinga munu leika listir sínar ásamt glæsilegum stóðhesti í eltiljósi,” segir í frétt frá Fáki en að lokinni Stórsýningu verður haldið bjórkvöld í Reiðhöllinni. “Dillibossa diskó og fljótandi veitingar er ávísun á stórskemmtileg kvöld með skemmtilegum og sætum hestamönnum,” segir ennfremur.
Stórsýningin hefst kl. 21, aðgangseyrir er kr. 2.500 inn en frítt er inn á Bjórkvöldið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH