Gæðingaval í fjórgangi Meistaradeildar

  • 1. febrúar 2013
  • Fréttir
Eyjólfur Þorsteinsson sigraði með yfirburðum á Hlekki frá Þingnesi sem er eins og snýttur út úr nös í þessa grein.

Gæðingaval var í fjórgangi Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum á fyrsta móti deildarinnar í gærkvöldi. Enginn lakur hestur var í hópnum, allir hestarnir sérlega vel til hafðir og ekki annað að sjá en allir væru í góðri þjálfun og tilbúnir í átökin.

Sú var tíðin að það þótti gott ef tveir til þrír góðir fjórgangshestar voru í umferð í keppni hér á landi og gengið var út frá tapi í fjórgangi á HM. Það er óhætt að segja að viðsnúningur hefur orðið á þessu, því öll 24 hrossin voru góðir fjórgangarar og helftin af þeim mjög góðir. Þetta er umhugsunarvert þegar haft er í huga að forystan í hrossarækt hefur af ýmsum verið gagnrýnd fyrir að leggja of mikla áherslu á ræktun alhliða hestsins og fjórgangshrossum sé ekki nægilegur gaumur gefinn.

Eyjólfur Þorsteinsson var efstur eftir forkeppni á Hlekk frá Þingnesi og sigraði af  öryggi í úrslitum. Hlekkur er undan Aðli frá Nýjabæ og Gátu frá Þingnesi, Orionsdóttur frá Litla-Bergi. Móðir Gátu er Ógát frá Þingnesi, Hrafnsdóttir frá Hrafnhólum. Ræktandi Hlekks er Þorsteinn Eyjólfsson, faðir Eyjólfs og eiga þeir feðgar hestinn saman. Þess skal getið að Hlekkur er úr ræktun Þorsteins í nokkra ættliði, en Hlekkur er fjórði ættliður frá hryssu hans Óttu frá Þingnesi, sem er móðir Ógátar. Nokkur hross úr ræktun Þorsteins af þessari ætt hafa náð toppi í keppni. Hlekkur er því engin tilviljun hjá skipstjóranum, heldur skotheld uppskrift.

Hlekkur er eins og snýttur út úr nös í hlutverkið. Brokkið er ýkt og stökkið álíka afbrigðilegt hjá íslenskum hesti og brokkið hans Suðra frá Holtsmúla. Fet og tölt er talsvert síðra. En Hlekkur er ungur hestur, ekki nema sjö vetra, og mun án efa bæta þessar gangtegundir á næstu árum. Veiki hlekkurinn í Hlekk er knappur frampartur og virðist hann fyrir vikið þurfa helst til mikinn stuðning frá taumi til að halda formi. Með meiri styrk og þjálfun mun jafnvægið aukast og Eyjólfur væntanlega geta gefið tauminn eftir af og til og þá verður heildarmyndin mun fallegri.

Eyjólfur og Hlekkur ásamt keppendum í öðru og þriðja sæti, þeim Guðmundi Björgvinssyni á Hrímni frá Ósi, Íslandsmeisturum í fjórgangi frá í fyrra, og Sigurði Sigurðarsyni á Loka frá Selfossi, sigurvegurum í fjórgangi Meistaradeildar 2011, voru í nokkrum sérflokki. Falleg áseta Guðmundar er til fyrirmyndar og Hrímnir er góður og fallegur hestur og ekki spillur grái liturinn og prúðleikinn. Hann var þó aðeins lokaður á bak við nokkuð harða keðju, einkum á hægu tölti og má ekki stytta skrefið þar meira.

Ásetan hans Sigga var hvorki betri né verri en verið hefur, en reiðmennskan var góð. Einkum var taumhald og fjaðurmagn á hæga töltinu í úrslitum gott. Loki er að auki frábær gæðingur á íslenska vísu og gaman að sjá þá félaga stilla saman strengi í þessari grein, sem oft mætir fordómum sem tréhestagrein.

Margt skemmtilegt og gott mátti sjá í hestum og reiðmennsku. Jakob S. Svavarsson og Árni Björn Pálsson eru flottir reiðmenn, hafa fallega og góða ásetu og gott jafnvægi. Asi hjá Jakobi er fallegur hestur með góðar gangtegundir, en þó ekki alveg sáttur í beisli. Öfjörð er verklegur hestur en ekki fínlegur eða fríður. Hann er hins vegar vel taminn og þjálfaður hjá Árna Birni.

Háfeti frá Leirulæk, sem Olil Amble reið, er sérstakur hestur og á margan hátt ekki ósvipuð hestgerð og Hlekkur frá Þingnesi en með mun fallegri háls. Brokk og stökk þessara hesta minnir fremur á þrígangshesta á meginlandinu heldur en dæmigerðan íslenskan hest. Þeir skoppa hátt að aftan og svífa meira á þessum gangtegundum en gengur og gerist. Ef Háfeti rýmkast á tölti á hann mikla möguleika í fjórgangi.

Bergur Jónsson reið eins og herforingi, teinréttur í fallegri, lóðréttri ásetu. Taumhöndin kyrr og stillt á öllum gangtegundum. Hestur hans Fálmar frá Ketilsstöðum er ungur foli sem á framtíðina fyrir sér sem keppnishestur, þótt þeir félagar kæmust ekki í úrslit að þessu sinni.

Hinrik og Hulda á Árbakka komust vel frá sínu í reiðmennskunni eins og endranær og sonur þeirra Gústaf Ásgeir er á sömu línu. Þar fara metnaðarfullir reiðmenn og þjálfarar með músík í fingrum og sæti. Þau riðu öll í B úrslitum og Hulda fór upp í A úrslitin á Katli frá Kvistum. Ketill hefur margt til að bera til að geta náð toppi í sportinu, en er ekki sáttur í beisli. Sem hugsanlega er vegna minninga úr kynbótasýningum. Fríður og flottur hestur.

Artemisia Bertus reið varlega á Korgi frá Ingólfshvoli, í dálítið framhallandi ásetu sem spillti heildarmyndinni. Korgur fór vel að flestu leyti en var ekki sannfærandi í framgöngu. Ekki er þó ólíklegt að Misa hafi fyrirfram skammtað sér hversu miklar kröfur hún myndi gera til hestsins að þessu sinni. Og ekki kvikað frá því þegar á hólminn var komið. Enda ekki dæmigerð íslensk!

Konsert frá Korpu var ekki nema þokkalegur hjá John Sigurjónssyni að þessu sinni; ekki nógu öruggur og taktviss til að komast í úrslit, en hefur allt til að bera til að vera í fremstu röð í þessari grein, ekki síður en í fimmgangi. Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Þórir frá Hólum voru einnig talsvert langt frá sínu besta.

Hugleikur frá Galtanesi, undan Andvara frá Ey og Platínu frá Djúpadal, Platónsdóttur frá Sauðárkróki er góður hestur með frábært upplag í fjórgangshest. Hesturinn er vel þjálfaður hjá Ólafi Ásgeirssyni, en Ólaur þarf að taka ásetu og stjórnun í gegn áður en hann gætur vænst þess að ná toppi. Sem hann gæti auðveldlega náð á þessum hesti.

Annar hestur sem vakti athygli þrátt fyrir að vera ekki í úrslitum er Prestur frá Hæli, brúnskjóttur undan Gammi frá Steinnesi. Rúmur og mjúkur hestur með flottar gangtegundir og liturinn spillir ekki, brúnskjóttur. Mikið fax og tagl. Knapi á honum var Kári „klári“ Steinsson. Prógrammið gekk ekki alveg upp að þessu sinni, en þeir félagar eiga örugglega framtíðan fyrir sér.

Í heildina var þetta fyrsta mót Meistaradeildarinnar gott. Breiddin í góðum hestum og knöpum í sportinu eykst jafnt og þétt ár frá ári. Sem er mjög gott!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link