Gæðingaveisla Sörla

  • 12. ágúst 2013
  • Fréttir
Gæðingamót verður haldið á Sörlavöllum 19.-20. ágúst. Skráning er hafin og fer fram á sportfengur.com. Skráningu lýkur á miðnætti 16. ágúst. Skráningargjald er 3.000 kr. 
Keppt verður í A flokki og A flokki áhugamanna ( Annað -annað í skráningarkerfinu ) B flokki og B flokki  áhugamanna ( Þrígangur – annað í skráningarkerfinu ) Ungmennaflokki, Unglingaflokki, Barnaflokki, tölti T3 opnum flokki, tölti T3 áhugamanna og tölti, 21. árs og yngri og 150m. 250m og 100m. skeiði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd Sörla sem hægt er að sjá hér fyrir neðan.
„Glæsilegt gæðingamót verður haldið á Sörlavöllum 19.-20. ágúst. Mótið verður allt hið glæsilegasta. Einn og einn verður inn á í einu og mun sína sitt prógram. Hitað verður upp í grillinu á kvöldin og allt gert til þess að öllum líði sem best í Hafnarfirðinum.
Skráning fer fram á sportfengur.com og er hún hafin og stendur til miðnættis 16. ágúst. Skráningargjald er 3.000 krónur.
Flokkar í boði:
A flokkur opinn
A flokkur áhugamenn ( Annað -annað í skráningarkerfinu ) B flokkur opinn B flokkur áhugamenn ( Þrígangur – annað í skráningarkerfinu ) Ungmennaflokkur Unglingaflokkur Barnaflokkur Tölt T3 opinn Tölt T3 áhugamenn Tölt 21. árs og yngri
100 m. skeið
150 m. skeið
250 m. skeið 
Taktu þessa daga frá og ekki láta þetta frábæra mót fram hjá þér fara, sjáumst á Sörlavöllum 19.-20.ágúst. Mótanefnd Sörla áskilur sér þann rétta að fella niður grein ef ekki næst nægileg þátttaka.“ 
Mótanefnd Sörla
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link