Gæðingaveisla Sörla
Gæðingaveisla Sörla verður haldin dagana 25. – 28. ágúst á Hraunhamarsvellinum.
Skráning er hafin á Sportfeng og stendur til 20. ágúst næstkomandi. Keppt verður í A og B-flokki Opinn flokkur, A og B-flokki áhugamanna, B-flokk ungmenna, B-flokk unglingaflokki og barnaflokki. Að auki verður keppt í 100m skeiði.
Mótanenfnd Sörla ætlar einnig að bjóða upp á gæðingatölt. Dæmt er hægt tölt og fegurðartölt ásamt því að gefnar eru einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið. Boðið verður upp á opinn flokk, áhugamannaflokk (2. flokkur) og ungmennaflokk (21 og yngri)
Skráningargjald:
Börn, unglingar: 4.000 kr.
Ungmennaflokkur: 5.000 kr.
Opinn flokkur: 5.000 kr.
Áhugamannaflokkur: 5.000 kr.
Skeið: 5000 kr.
-ATH – Sé greitt með millifærslu þarf kvittun að berast á [email protected] til að skráning sé tekin gild.
Allar fyrirspurnir og afskráningar skulu berast á [email protected] Sé skráð eftir að skráningafresti lýkur er tvöfalt skráningagjald en ekki verður bætt við eftir að ráslistar verða gefnir út. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þáttaka.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH