Gæðingaveisla Sörla og Íshesta
„Glæsilegt gæðingamót verður haldið á Sörlavöllum 22.-25. ágúst. Mótið verður allt hið glæsilegasta. Einn og einn verður inn á í einu og mun sína sitt prógram. Hitað verður upp í grillinu á kvöldin og allt gert til þess að öllum líði sem best í Hafnarfirðinum. Skráning fer fram á skraning.is. Skráningargjald er 3.000 krónur.
Flokkar í boði:
A flokkur opinn
A flokkur áhugamenn
B flokkur opinn
B flokkur áhugamenn
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Tölt meistara
Tölt Opinn
Tölt áhugamenn
Tölt 21. árs og yngri
100 m. skeið
150 m. skeið
250 m. skeið
Taktu þessa daga frá og ekki láta þetta frábæra mót fram hjá þér fara, sjáumst á Sörlavöllum 22.-25.ágúst.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH