Gæðingshryssur
Flokkur fimm vetra hryssna var næst stærsti flokkurinn, alls 295, en það gerir 16% af öllum sýndum hrossum og tæpur fjórðungur af sýndum hryssum. Orri frá Þúfu á tvo fulltrúa í hópi efstu tíu, eða þær Söru frá Stóra-Vatnsskarði og Þórdísi frá Prestsbæ. Efsta hryssan er frá Þýskalandi en það er Hrönn vom Kronshof. Hrönn stóð efst í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Herning þar sem hún hlaut jafnframt sinn hæsta dóm. Hrönn hlaut fyrir hæfileika 8,69 og fyrir sköpulag 8,28. Frauke Schenzel sýndi Hrönn en hún hlaut 9,0 fyrir tölt og brokk og 8,5 fyrir rest.
Önnur er Hrafna frá Hrafnkelsstöðum I en Daníel Jónsson sýndi Hröfnu. Hrafna hlaut fyrir hæfileika 8,68 og fyrir sköpulag 8,18. Fyrir tölt, skeið og fegurð í reið hlaut hún 9,0 sem og bak og lend og samræmi. Þriðja er Ríkey frá Flekkudal en hún var fulltrúi Íslands á heimsmeistaramótinu þar sem hún endaði í öðru sæti. Ríkey fór þar í sinn hæsta dóm en hún hlaut 8,35 fyrir hæfileika og 8,53 fyrir sköpulag. Hún hlaut 9,0 fyrir skeið og vilja og geðslag.
5 vetra hryssur
8.52 Hrönn vom Kronshof Ögri Hvolsvelli Veipa Kronshof Þýskaland
8.48 Hrafna frá Hrafnkelsstöðum 1 Hrafnar Auðsholtshjáleigu Skyggna Hrafnkelsstöðum 1 Ísland
8.42 Ríkey frá Flekkudal Glymur Flekkudal Björk Vindási Ísland
8.40 Sara frá Stóra-Vatnsskarði Orri Þúfu í Landeyjum Lukka Stóra-Vatnsskarði Ísland
8.40 Sorg fra Slippen Garri Reykjavík Héla Kílhrauni Danmörk
8.38 Brá frá Káragerði Þóroddur Þóroddsstöðum Hátíð Káragerði Ísland
8.37 Snilld frá Syðri-Völlum Kraftur Efri-Þverá Rakel Sigmundarstöðum Ísland
8.35 Dagstjarna fran Knubbo Prins Knutshyttan Dögun Knubbo Svíþjóð
8.34 Þórdís Prestsbæ Orri Þúfu í Landeyjum Þoka Hólum Ísland
8.33 Kvika frá Grenjum Kvistur Skagaströnd Kleópatra K Seljabrekku Ísland
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH