Gæðingurinn Álmur frá Skjálg

  • 8. júlí 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Flugvakur og lundgóður

Álmur frá Skjálg varð annar í A flokki á LM2011 á Vindheimamelum. Að flestra mati var hann sá hestur sem sýndi best skeið í úrslitunum. Enda góð vekurð sterk í ættum. Í ættartréinu eru stóðhestar á borð við Náttfara frá Ytra-Dalsgerði, Ófeig frá Flugumýri og Kolfinn frá Kjarnholtum. Og síðast en ekki síst þá er móðursystir hans hin fræga Fluga frá Valshamri, sem var allra hrossa vökrust á sinni tíð.

Álmur er undan Vár frá Skjálg og Trú frá Kjartansstöðum, sem er albróðir Töfra frá Kjartansstöðum. Álmur er með 8,37 í aðaleinkunn og hefur hlotið 9,5 fyrir skeið og vilja. Hann verður í hólfi á Forsæti í  Vestur-Landeyjum í sumar, þar sem þjálfari hans og annar eigandi, Sigursteinn Sumarliðason starfar nú. Allar nánari upplýsingar í síma 849-1240 (Gulla) og 861-1720 (Sigursteinn). Tollurinn kostar 75 þúsund krónur með öllu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link