Galsi allur

  • 16. júní 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Gæðingur kveður þennan heim.

Galsi frá Sauðárkróki er allur en hann var 26 vetra gamall. Galsi var undan Ófeigi frá Flugumýri og Gnótt frá Sauðárkróki. Í kynbótadómi hlaut Galsi hæst 8.44 í aðaleinkunn þar af 9.01 fyrir hæfileika. Hann hlaut m.a. 9.8 fyrir skeið, 9.3 fyrir brokk, 9.5 fyrir vilja og 9.0 fyrir fegurð í reið. Galsi hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi árið 2002 og heiðursverðlaun árið 2004.

Galsi var víðtækur í hrossaræktinni en hæst dæmda afkvæmi Galsa er heiðursverðlaunahesturinn Stáli frá Kjarri. Galsi hefur einnig gefið nokkra heimsmeistara m.a. Hraunar frá Efri-Rauðalæk, tvöfaldan heimsmeistara í fimmgangi, og Tuma frá Borgarhóli, heimsmeistara í gæðingaskeiði. 

 

„Erfiður dagur í dag , Galsi frá Sauðárkróki tók síðasta skeiðsprettinn sinn og nú til himna . Þessi mikli höfðingi hefur átt stóran part af okkur í yfir 20 ár og skilur eftir sig glæsilegar minningar um einstakan hest , sem betur fer eigum við mikið af hans genum í okkar hrossum  🙂 Nú rifjast upp eitt flottasta moment síðasta heimsmeistara móts þegar 2 synir hans þeir Tumi og Sproti með Teit og Gumma börðust um heimsmeistaratitilinn í skeiði 🙂 En takk fyrir allt Galsi þú varst og ert einstakur.“ segir Baldvin Ari Guðlaugsson um Galsa á facebook síðu sinni. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link