Galsi í unga fólkinu

  • 29. júní 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Setningarathöfn LM2012 var hátíðleg og um 600 knapar og hestar tóku þátt í hópreið hestamannafélaganna.

Setningarathöfn Landsmóts var hátíðleg að venju. Um sex hundruð hross og knapar tóku þátt í hópreið hestamannafélaganna og ýmsir gestir voru þar með í för. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heiðraði samkomuna ásamt konu sinni Dorrit. Fleira hefðarfólk var á þar einnig og flutti ávörp, svo sem Katrín Jakobsdóttir menntamála og biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir.

Hesturinn og knapinn á myndinni voru hins vegar orðin óþreyjufull þegar leið á athöfnina og kominn galsi í marga yngri knapan, sem létu spretta úr spori til að hressa upp á tilveruna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link