Gaman saman á Melgerðismelum

  • 18. júlí 2020
  • Fréttir

Kristján Árni Birgisson sigraði keppni í Barnaflokki á LM2016 hér sést hann prúðbúinn að keppni lokinni

,,Helgina 24.-26 júlí ætla Funa- og Léttismenn að standa saman að hátíð á Melgerðismelum þar sem leikur og gleði verður ráðandi í bland við létta keppni.“  Þetta kemur fram í auglýsingu sem Eiðfaxa barst í morgun frá þessum félögum sem hvetja hestamenn til þess að taka helgina frá.

Dagskráin verður eftirfarandi.

Föstudagur
Hópreið frá Kaupangsbökkum klukkan 17:00 – Léttismenn sameinumst og búum til Bakkareiðarstemningu!
Kjötsúpa á Melunum frá klukkan 20:00 – 22:00 – Allir velkomnir

Laugardagur
10:00 tölt T7 (2.flokkur, meira og minna vanir)
Matarhlé
13:00 Úrslit í tölti
15:00 Kappreiðar (Stökk, brokk. 150 m. og 250 m. skeið)
17:00 reiðtúr um melana og upp í gömlu Borgarréttina
20:00 grillveisla að hætti hestamanna (það getur ekki klikkað)

Eftir grill er keppt í 100 metra skeiði
Að loknu skeiði verður skemmtun og uppákomur fram á kvöld og jafnvel lengur ef stemning er góð.

Sunnudagur
Heimferð

Til að við áttum okkur á hversu mikinn mat þarf á grillið er fólk beðið um að skrá sig í það fyrir miðnætti miðvikudaginn 22.j+ulí með því að senda póst á [email protected]

Hátíðin er opin öllum, engin keppnisgjöld eru en greitt er fyrir veitingar.
Súpan kostar 1.000 krónur (500 fyrir 10-16 ára)
Grillið kostar 2.500 krónur (1.500 fyrir 10-16 ára)

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link