Garðshorn á Þelamörk er Ræktunarbú ársins 2021

  • 28. nóvember 2021
  • Fréttir
Ráðstefnan Hrossaræktin 2021

Ræktunarbú ársins 2021 er Garðshorn á Þelamörk en það eru þau Birna Tryggvadóttir og Agnar Þór Magnússon sem standa á bakvið ræktunina.

Af þeim hrossum sem sýnd voru frá búinu má þá fyrst nefna Glundroða en hann hlaut í aðaleinkunn 8,48, fyrir hæfileika 8,62 og fyrir sköpulag 8,22. Næstur í röðinni er Kastor en hann var einn af þeim fáu sem hlaut einkunnina 10 fyrir skeið á árinu. Í aðaleinkunn hlaut Kastor 8,48, 8,62 fyrir hæfileika og 8,22 fyrir sköpulag.

Sýnd voru þrjú fjögurra vetra hross frá búinu sem öll hlutu fyrstu verðlaun, Ómar (8,23), Afródíta (8,33) og Aðalheiður (8,24).

 

Garðshorn var einnig tilnefnt sem Keppnishestabú ársins hjá LH fyrr í haust og er þetta því magnað ár hjá búinu.

Eiðfaxi óskar þeim Agnari og Birnu innilega til hamingju með titilinn og stórglæsilegan ræktunar árangur ársins 2021.

 

Sýnd hross frá búinu árið 2021 

Fæðingarnúmer Nafn Uppruni S H Ae.
IS2014164066 Kastor Garðshorni á Þelamörk 8,22 8,62 8,48
IS2015164066 Glundroði Garðshorni á Þelamörk 8,49 8,50 8,5
IS2016264066 Sjón Garðshorni á Þelamörk 7,76 7,73 7,74
IS2016264068 Sif Garðshorni á Þelamörk 8,10 7,58 7,77
IS2017164067 Ómar Garðshorni á Þelamörk 8,21 8,24 8,23
IS2017264066 Afródíta Garðshorni á Þelamörk 8,43 8,27 8,33
IS2017264068 Aðalheiður Garðshorni á Þelamörk 8,30 8,21 8,24

Ljósmynd: Emilia Staffansdotter

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link