Gaumur, Álfur, Spá, Glíma, Arion og fleiri gæðingar

  • 29. júní 2012
  • Fréttir
Gaumur, Álfur, Spá, Glíma, Arion og fleiri gæðingar

Sýning ræktunarbúa fer fram í kvöldsólinni. Efri Rauðalækur hófu leikinn, snyrtileg sýning og kröftugir og flottir hestar. Syðri-Gegnishólar endurtóku leikinn og voru með skrautreið á skeiði. Létu skeiða í fylkingu, í kross og alls konar útfærslur. Vígaleg sýning og greinilegt að áhorfendum er ekki illa við skeiðsýningar. Álfur frá Selfossi bætist síðan í hópinn.

Koltursey hefur verið að koma sér á framfæri þetta árið og hefur merin Staka frá Koltursey vakið mikla athygli fyrir fótaburð. Koltursey voru með flotta sýningu og auðvitað fylgdi Staka hópnum. Þórdís Erla mætti á Gaum frá Auðsholtshjáleigu í ræktunarbússýningu Auðsholtshjáleigu. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2008 sem Gaumur kemur fram og hann hafði greinilega engu gleymt. Til gamans má geta að það eru 18 ár síðan Auðsholtshjáleiga byrjaði að rækta hross og eru þau komin með um 70 fyrstu verðlauna hross.

Eystra-Fróðholt hefur verið að gera það ansi gott á þessu móti en það á efstu hross í flokki 5 vetra hryssna (Spá frá Eystra-Fróðholti), í flokki 6 vetra stóðhesta (Arion frá Eystra-Fróðholti) og svo er Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir með hana Glímu frá Bakkakoti í a úrslitum í ungmennaflokki. Til gamans má geta er að öll þessi hross eru alsystkini en þau eru undan Glettu frá Bakkakoti og Sæ frá Bakkakoti. Auðvitað mætti Ársæll sjálfur og reið með í sýningunni. 

Óboðinn gestur hljóp inn á völlinni á tréhesti, náði að hlaupa af sér tvo gæslumenn þangað til að sjá þriðji náði honum og fjarlægði hann af vellinum. Ef brekkan skyldi vera að sofna var Daníel Jónsson fjótur að bregðast við því og lék á alls oddi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link