Geert nýkrýndur Íslandsmeistari í járningum

  • 24. október 2021
  • Fréttir

Geert Cornelis Íslandsmeistari í járningum 2021 með verðlaunin sín, ásamt þeim Gunnari Halldórssyni og Halldóri Kristni Guðjónssyni, sem höfnuðu í öðru og þriðja sæti. Mynd: Marteinn Magnússon, visir.is

Íslandsmótið í járningum fór fram um helgina

Íslandsmótið í járningum fór fram um helgina á Eldhestum í Ölfusi. Átta keppendur tóku þátt í mótinu og var Geert Cornelis, frá Belgíu, krýndur Íslandsmeistari í járningum árið 2021. Í öðru sæti varð Gunnar Halldórsson og í þriðja sæti varð Halldór Kristinn Guðjónsson.

Yfirdómari var Sigurður Sæmundsson en Sturla Þórhallsson var meðdómari en það var Járningarmannafélag Íslands sem stóð að Íslandsmótinu.

Hér er hægt að sjá frekar fréttir af mótinu

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link