Gestur frá Borgarhóli valinn glæsilegasta folaldið

  • 26. febrúar 2024
  • Fréttir

Gestur frá Borgarhóli

Folaldasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara fór fram í gær á Melgerðismelum.

Mikill fjöldi folalda var skráður til leiks eða alls 58.

„Sýningin markaði tímamót því hún var sú fyrsta sem var dæmd eftir reglum FEIF um folalda og unghrossadóma. Það þýðir að niðurstöður dóma eru skráðir jafnóðum inná síðunni icefoal.com. Þar er hægt að skoða dóma á öllum folöldum sýningarinnar sem og ættir, ræktendur og eigendur svo eitthvað sé nefnt,“ segir í tilkynningu frá hrossaræktarfélaginu.

Eyþór Einarsson var sem fyrr dómari á sýningunni og lagði þónokkur fjöldi fólks leið sína á Melana og fylgdist með.

Úrslitin urðu eftirfarandi:

Hestar
1 sæti
Roði frá Úlfsstöðum 162 stig
F: Skýr frá Skálakoti
M: Sýn frá Söguey
Eig: Jónas Hallgrímsson

2 sæti
Gestur frá Borgarhóli 158 stig
F: Kjarni frá Fellshlíð
M: Kviða frá Borgarhóli
Eig: Elín og Ævar

3 sæti
Kjarni frá Litla-Dal 156 stig
F: Rauðskeggur frá Kjarnholtum
M: Katla frá Litla-Dal
Eig: Kristín Thorberg

Hryssur
1 sæti
NN frá Höskuldsstöðum 158 stig
F: Sindri frá Hjarðartúni
M: Gróska frá Garðshorni
Eig: Snæbjörn Sigurðsson

2 sæti
Fjöður frá Borgarhóli 157 stig
F: Einskeggur frá Fellshlíð
M: Þruma frá Höskuldsstöðum
Eig: Gestur Stefánsson

3 sæti
Klöpp frá Hrafnagili 157 stig
F: Hákon frá Ragnheiðarstöðum
M: Klettagjá frá Hrafnagili
Eig: Jón Elvar

Glæsilegasta folaldið að mati áhorfenda var Gestur frá Borgarhóli

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link