Getraun Eiðfaxa
Nú geta lesendur Eiðfaxa kannað þekkingu sína á efni blaðsins á árinu sem var að líða. Svör við spurningunum sem hér fylgja er öll að finna í Eiðfaxa, árgangi 2009. Þátttakendur eru beðnir að senda svörin með tölvupósti á netfangið [email protected]
Þrír þátttakendur verða dregnir úr hópi þeirra sem senda inn rétt svör fyrir 20. janúar og fá þeir áskrift að Eiðfaxa, fyrra tímabil 2010, í verðlaun. Góða skemmtun.
1. Hvað þarf hestur um það bil margar fóðureiningar til viðhalds á dag?
- a. 2,5-3,0
- b. 3,5-4,0
- c. 4,5-5,0
2. Hve mörg hross alls voru flutt út árið 2008?
- a. 1011
- b. 1776
- c. 2103
3. Á hvaða stigi knapamerkjanna lærir nemandinn að þekkja og þjálfa gangtegundirnar?
- a. 1
- b. 3
- c. 4
4. Til hvaða lands var stóðhesturinn Glotti frá Sveinatungu seldur þegar hann yfirgaf Ísland árið 2008?
- a. Færeyja
- b. Þýskalands
- c. Danmerkur
5. Hvað finnst Guðmundi Einarssyni og Hjalta Guðmundssyni best við Svíþjóð?
- a. Veðrið og maturinn
- b. Veðrið og konurnar
- c. Maturinn og konurnar
6. Hver sigraði Meistaradeild VÍS 2008?
- a. Sigurbjörn Bárðarson
- b. Þorvaldur Árni Þorvaldsson
- c. Viðar Ingólfsson
7. Hvar hittust þau fyrst Sigurður Ólafsson stórsöngvari og hestamaður og konan hans, hestakonan Valfríður Einarsdóttir (Snúlla)?
- a. Broadway
- b. Tryggvaskála
- c. Café Royal
8. Hvaða einkunn fékk stóðhesturinn Oliver frá Kvistum fyrir hæfileika í Borgarnesi árið 2009?
- a. 8,90
- b. 8,92
- c. 8,93
9. Hvaða veitingar bauð Eiðfaxi gestum upp á í básnum sínum á HM í Sviss 2009?
- a. Skyr og kaffi
- b. Konfekt og kaffi
- c. Pönnukökur og kaffi
10. Hvaða hestur og knapi urðu í 7. sæti í A-flokki gæðinga á FM 2009?
- a. Sólon frá Skáney og Haukur Bjarnason
- b. Umsögn frá Fossi og Jón W Bjarkason
- c. Máttur frá Torfunesi og Erlingur Ingvarsson
11. Hvaða hryssa var efst í flokki 6v hryssa á HM 2009?
- a. Sóley fra Beder
- b. Kvika fvom Forstwald
- c. Vordís vom Kronshof
12. Hvað voru mörg íslensk hross seld til Póllands árið 1946?
- a. 86
- b. 195
- c. 1153
13. Hvaða ár var hestamannafélagið Sindri stofnað?
- a. 1949
- b. 1954
- c. 1960
14. Undan hvaða stóðhesti er hryssan Bylgja frá Sturlureykjum?
- a. Ófeigi frá Hvanneyri
- b. Hrafni frá Holtsmúla
- c. Otri frá Sauðárkróki
15. Hvaða ár voru síðast fluttir hestar erlendis frá til Íslands?
- a. 1764
- b. 1838
- c. 1938
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson