Gígjar á seinna gangmáli

  • 23. júlí 2011
  • Fréttir
Gígjar á seinna gangmáli

Gígjar frá Auðsholtshjáleigu verður seinna gangmál að Bergsstöðum í Aðaldal Suður-Þingeyjarsýslu. Tekið verður á móti hryssum sunnudagskvöldið 24. júlí milli kl. 20:00 og 22:00. Enn er hægt að bæta við nokkrum hryssum og við pöntunum tekur Vignir í síma 896-1838. Verð er kr. 126.000.- með öllu (vsk. hólfagjald og 1 sónarskoðun). Gígjar hefur hlotið fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og segir meðal annars í umsögn hrossaræktarráðunauts að það sem einkenni afkvæmin sé snarpur vilji og mikill fótaburður. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link