Gígjar í Aðaldal
Gígjari frá Auðsholtshjáleigu verður senn sleppt í hólf (fyrra gangmál) á Bergsstöðum í Aðaldal.
Tekið verður á móti hryssum á Bergsstöðum þriðjudaginn 19. júní frá kl. 19:00 – 21:00. Enn er hægt að bæta við hryssum í hólfið og er áhugasömum bent á að hafa samband við Vigni í síma 896-1838 eða á netfangið [email protected].
Verð er 100.000.- með vsk. hólfagjaldi og einni sónarskoðun. Umsjónarmaður er Benedikt og er hann í síma 862-7703.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH