GK Gluggamót Harðar

  • 5. mars 2012
  • Fréttir
GK Gluggamót Harðar

GKgluggamótið verður haldið laugardaginn 10. mars nk. að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd hestamannafélagsins Harðar.

 
Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölti.
Keppt verður í einum flokk og einn inná í einu (meistaraflokks prógramm)
 
Umsögn frá dómurum mun fylgja fyrir hvern knapa.
 
Þátttökugjald er 3000 kr. á hverja skráningu. Skráning fer fram miðvikudagskvöldið 7. mars milli kl. 20-22 í Harðarbóli og í símum 5668282, 8993917 og 8986017.
 
Greiða þarf við skráningu að öðrum kosti fer viðkomandi knapi ekki á ráslista sem verður birtur ásamt dagskrá  föstudaginn 9. mars.
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link