Glæsileg atriði á Tekið til kostanna
Stórsýningin Tekið til kostanna fer fram í Svaðastaðahöll í kvöld.
Eftirfarandi atrið verða á sýningunni:
1. Tilkomumikið opnunaratriði, samtvinnað af hátíðleik og spaugi.
2. Gæðingurinn Þöll frá Heiði ásamt Sigurði Óla Kristinssyni.
3. Stóra Stóðhestaveislan – nýstárleg útfærsla á stóðhestakynningu þar sem 12 stóðhestar mæta til leiks.
4. Fás-Fákar – nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra.
5. Átta flottar klárhryssur munu leika listir sýnar.
6. Sunnudagur í sveit – sem er leikþáttur eftir Agnar Gunnarsson á Miklabæ. Þetta er rómantísk lýsing á því hvernig fólk naut lífsins hér áður fyrr, kryddað með söng stórsöngvarans Helgu Rósar Indriðadóttur.
7. Tveir fjallbrattir að norðann – Í þessu atriði kemur fram ósýnd glæsihryssa undan Parker frá Sólheimum og Eldingu frá Blönduósi.
8. Ræktunarbússýning frá Árbæjarhjáleigu/Skarði þar sem fram koma fjögur hross úr rækun þeirra Marjolijn Tiepen og Kristins Guðnasonar.
9. Tvær 10 – Hér koma fram tveir magnaðir stóðhestar sem báðir hafa hlotið 10 í kynbótadómi fyrir ákveðinn eiginleika.
10. FT- félagar í Skagafirði með glæsilegt atriði sem þau Arndís á Vatnsleysu, Barbara Wenzl, Egill Þórarins, Elvar á Skörðugili, Erlingur Ingvars, Hafdís Arnarsdóttir, Hörður Óli, Líeny á Tunguhálsi, Sölvi Sig og Tóti Eymunds taka þátt í.
11. Gísli og Mette mæta með gæðingana Trymbill frá Stóra-Ási og Lukka frá Kálfsstöðum.
12. Hlé – Í hléi verða sýndir hestar í uppstyllingu á gólfinu og í boði kynning á fóðurvörum frá Bændaþjónustunni í Saurbæ.
13. Skeiðkappreiðar – 13 útvaldir vekringar mæta.
14. Í minningu Sigurbjörns Þorleifssonar frá Langhúsum.
15. Skagfirskar ungmeyjar – flugríðandi.
16. Sex góðar alhliðahryssur
17. Gimsteinninn, Óskasteinn frá Íbishóli ásamt Magga Magg í kjóli og hvítt.
18. Ræktunarbússýning frá Vatnsleysu
19. Hinar frábæru Dívur úr vestur Hún mæta öflugri en nokkrusinni fyrr.
20. Glæsiparið Artemisia Bertus og Óskar frá Blesastöðum munu síðan slá botninn í sýninguna.
Þulir á sýningunni verða þeir Guðmundur Sveinsson og Ólafur Sigurgeirsson.
Tuttugumanna dómnefnd mun velja glæsilegasta hest sýningarinnar og besta atriði en 25.000 kr eru í verðlaun. Tilkynnt verður um þau úrslit að lokinni sýningu í anddyrinu en þar verður lifandi mússik eftir sýningu. Þá má geta þess að dansleikur verður á Mælifelli.
Munið að tryggja ykkur miða í tíma hjá Orkunni/Bláfelli Sauðárkróki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH