Glæsileg skrúðreið

  • 2. apríl 2011
  • Fréttir
Glæsileg skrúðreið

Um 180 hross tóku þátt í hátíðlegri skrúðreið Hestadaga í Reykjavík á Laugavegi í dag.

Reiðina leiddu Hrefna María Ómarsdóttir tamningakona, klædd skautbúningi, og John Kristinn Sigurjónsson. Þá fylgdu þáttakendur frá hestamannafélögunum Andvara, Fáki, Gusti, Herði, Sóta og Sörla ásamt fulltrúum Landssambands Hestamanna og Félags tamningamanna.

Margir lögðu leið sína í miðbæinn til að bera skrúðreiðina augum og virtust þáttakendur skemmta sér konunglega eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Botninn verður slegið í Hestadaga í Reykjavík í kvöld þegar ísmótið „Þeir allra sterkustu“ fer fram í skautahöllinni í Laugardal. Mótið hefst kl. 20.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link