Glæsileg töltúrslit
Úrslitum í þremur flokkum í tölti er nú lokið hér á Fjórðungsmótinu á Fornustekkum. Úrslitin voru spennandi í öllum flokkum og þurfti dómararöðun í opnum flokki til að skera úr um sigurvegara.
Tölt meistara sigraði Sigurður Sigurðarson á Rauðu-List frá Þjóðólfshaga með 7,94. Í öðru sæti varð Lára Jóhannsdóttir og Gormur frá Herríðarhóli með 7,78.
Í opnum flokki í tölti var það Helga Gísladóttir á Sögu frá Blönduósi sem sigraði en sætaröðun dómara þurfti til að skera úr á milli þeirra Helgu og Vilborgar Smáradóttur sem reið Dreyra frá Hjaltastöðum.
Í tölti 21 árs og yngri sigraði Brynjar Nói Sighvatsson á Konsúl frá Ármóti með 6,56 en jafnar í 2-3 sæti urðu Svnhildur Guðbrandsdóttir og Elísabet Vaka Guðmundsdóttir.
A úrslit Tölt Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sigurður Sigurðarson Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 7,94
2 Lára Jóhannsdóttir Gormur frá Herríðarhóli 7,78
3 Hjörvar Ágústsson Hrafnfinnur frá Sörlatungu 7,56
4 Leó Geir Arnarson Matthildur frá Reykjavík 7,50
5 Hlynur Guðmundsson Magni frá Hólum 7,33
6 Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson Lind frá Úlfsstöðum 7,00
7 Róbert Bergmann Gola frá Bakkakoti 6,78
8 Guðmundur Karl Tryggvason Rauðhetta frá Efri-Rauðalæk 6,56
A úrslit Tölt 21 árs og yngri
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Brynjar Nói Sighvatsson Konsúll frá Ármóti 6,56
2-3 Svanhildur Guðbrandsdóttir Aðgát frá Víðivöllum fremri 6,39
2-3 Elísabet Vaka Guðmundsdóttir Heiðrún frá Bakkakoti 6,39
4 Jón Ársæll Bergmann Eyja frá Garðsauka 6,17
5 Mathilde Larsen Vinur frá Bjarnanesi 5,78
6 Margrét Ásta Hreinsdóttir Bragi frá Björgum 5,22
A úrslit Tölt opinn flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Helga Gísladóttir Saga frá Blönduósi 6,89
2 Vilborg Smáradóttir Dreyri frá Hjaltastöðum 6,89
3 Hallgrímur Anton Frímannsson Prins frá Hofteigi 6,17
4 Hulda Jónsdóttir Hekla frá Strandarhjáleigu 6,11
5 Hulda Björk Haraldsdóttir Draumur frá Borgarhóli 5,89
6 Guðbjörg O Friðjónsdóttir Baldur frá Garði 5,56
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH