Glæsileg úrtaka og Gullmót
Eftir HM-úrtöku í síðustu viku og glæsilegt Gullmót sem lauk á sunnudaginn, hafa sjö knapar tryggt sér sæti í liðinu. Að auki eigum við þrjá ríkjandi heimsmeistara sem allir hafa staðfest þátttöku sína á HM2013.
Þessir knapar eru:
- Jakob Svavar Sigurðsson/Alur frá Lundum II – stigahæsti 5-gangari í úrtöku
- Viðar Ingólfsson/Hrannar frá Skyggni – stigahæsti 4-gangari í úrtöku
- Hinrik Bragason/Smyrill frá Hrísum – stigahæsti töltari T1 í úrtöku
- Teitur Árnason/Jökull frá Efri-Rauðalæk – 5. hestur skv. lykli að vali liðsins, náði betri tíma en 22,10. ATH: þetta er birt með fyrirvara um að aðrir nái ekki betri tíma fram að lokavali liðsins en Teitur gerði í 250m skeiðinu en hans besti tími var 21,93
- Arnar Bjarki Sigurðarson/Arnar frá Blesastöðum 1A – stigahæsti 5-gangari í ungmennaflokki í úrtöku
- Arna Ýr Guðnadóttir/Þróttur frá Fróni – stigahæsti 4-gangari í ungmennaflokki í úrtöku
- Flosi Ólafsson/Möller frá Blesastöðum 1A – stigahæsti töltari T1 í ungmennaflokki í úrtöku
- Eyjólfur Þorsteinsson – ríkjandi heimsmeistari í samanlögðum 4-gangsgreinum
- Jóhann Rúnar Skúlason – ríkjandi heimsmeistari í tölti T1
- Bergþór Eggertsson – ríkjandi heimsmeistari í 100m skeiði
Landsliðsnefnd þakkar Gullmótinu og Fáki fyrir gott samstarf og glæsilegt mót sem tókst afar vel til með. Um leið minnir nefndin á opinn fund í húsakynnum Ásbjörns Ólafssonar í dag kl. 17:00.
Þar munu tveir reynsluboltar flytja erindi og fyrstan skal kynna fyrrum landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í handknattleik, Guðmund Guðmundsson þjálfara hjá Rhein-Neckar Löwen. Hann flytur erindi um uppbyggingu liðsheildar og markmiðasetningu.
Það er svo Sigurður Sæmundsson fyrrum liðsstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem flytur erindið „Leiðin að gullinu“. Þessir kappar búa yfir mikilli reynslu á sínu sviði og hafa náð gríðarlega góðum árangri í gegnum tíðina. Það er því mikill fengur í því að fá að hlusta á þá miðla reynslu sinni til okkar hestamanna.
Vakin er sérstök athygli á því að þessi fundur er opinn öllum unnendum íslenska hestsins og áhugsamir eru boðnir velkomnir í húsakynni Ásbjörns Ólafssonar sem er samstarfsaðili íslenska landsliðsins og er meðal annars með hinar þekktu Kerckhaert skeifur.