Glæsilegri gæðingakeppni lokið

  • 5. september 2021
  • Fréttir

Sigurður Sigurðarson og Rauða-List frá Þjóðólfshaga sátt með sigurinn

Niðurstöður úr a og b flokki á Metamóti Spretts

Þá er Metamóti Spretts lokið og markar það endalok keppnistímabilsins hérlendis. Þeir voru glæsilegir gæðingarnir á Samskipavellinum í dag en hér fyrir neðan eru niðurstöður úr a úrslitum í a flokki og b flokki.

Rauða-List frá Þjóðólfshaga og Sigurður Sigurðarson unnu b flokk atvinnumanna með 9,06 í einkunn en í öðru sæti voru þeir Hrafn frá Breiðholti í Flóa og Sigurbjörn Bárðarson með einkunnina 9,01 og í því þriðja voru Gutti frá Brautarholti og Ævar Örn Guðjónsson með 8,81 í einkunn.

Þetta var góður dagur hjá þeim Kaldalóni frá Kollaleiru og Jóhanni Ólafssyni en þeir unnu b flokk áhugamanna með 8,51 í einkunn og einnig töltið í 2.flokki. Í öðru sæti í b flokki áhugamanna var Mylla frá Hólum og Unnur Sigurpálsdóttir með 8,45 í einkunn og í því þriðja voru Krummi frá Höfðabrekku og Auður Stefánsdóttir með 8,39 í einkunn.

Engill frá Ytri-Bægisá I og Snorri Dal sigruðu A flokk atvinnumanna með 8,90 í einkunn. Annar varð Guðmar Freyr Magnússon á Rosa frá Berglandi I með 8,73 í einkunn og í því þriðja var Jökull frá Breiðholti í Flóa og Sylvía Sigurbjörnsdóttir með 8,72 í einkunn.

Völundur frá Skálakoti og Sanne Van Hezel sigraði A flokk áhugamanna með 8,54 í einkunn. Í öðru sæti var Freyr frá Hraunbæ og Sigurbjörn J Þórmundsson með einkunnina 8,34 og í því þriðja voru Tónn frá Breiðholti í Flóa og Kristín Ingólfsdóttir með 8,31 í einkunn.

A úrslit – B flokkur – Atvinnumanna
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 Sigurður Sigurðarson Rauður/milli-einlitt Geysir 9,06
2 Hrafn frá Breiðholti í Flóa Sigurbjörn Bárðarson Brúnn/milli-einlitt Sprettur 9,01
3 Gutti frá Brautarholti Ævar Örn Guðjónsson Brúnn/milli-einlitt Sprettur 8,81
4 Loki frá Lokinhömrum 1 Ásmundur Ernir Snorrason Vindóttur/mós-, móálótt-einlitt Máni 8,78
5 Fjöður frá Hrísakoti Sigursteinn Sumarliðason Grár/brúnneinlitt Sprettur 8,71
6 Flugar frá Morastöðum Anna Björk Ólafsdóttir Rauður/milli-stjörnótt Sörli 8,71
7 Hrönn frá Torfunesi Birta Ingadóttir Rauður/milli-einlitt Fákur 8,67
8 Narfi frá Áskoti Sigurður Sigurðarson Brúnn/milli-einlitt Geysir 0,00

A úrslit – B flokkur – áhugamanna
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Kaldalón frá Kollaleiru Jóhann Ólafsson Grár/jarpureinlitt Fakur 8,51
2 Mylla frá Hólum Unnur Sigurpálsdóttir Jarpur/milli-einlitt Sprettur 8,45
3 Krummi frá Höfðabakka Auður Stefánsdóttir Brúnn/milli-einlitt Sprettur 8,39
4 Vinur frá Sauðárkróki Hrafnhildur Jónsdóttir Jarpur/milli-einlitt Fákur 8,39
5 Ósvör frá Reykjum Kristinn Már Sveinsson Bleikur/fífil/kolótturstjörnótt Hörður 8,33
6 Vinur frá Fossi Hólmsteinn Ö. Kristjánsson Brúnn/milli-einlitt Sprettur 8,31
7 Gaukur frá Steinsholti II Gunnar Marteinsson Rauður/milli-stjörnótt Sprettur 8,17
8 Fákur frá Bólstað Laura Diehl Rauður/milli-blesótt Sprettur 8,12

A úrslit – A flokkur – atvinnumanna
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Engill frá Ytri-Bægisá I Snorri Dal 8,90
2 Rosi frá Berglandi I Guðmar Freyr Magnússon 8,73
3 Jökull frá Breiðholti í Flóa Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,72
4 Starkar frá Egilsstaðakoti Viðar Ingólfsson 8,71
5 Seiður frá Hólum Konráð Valur Sveinsson 8,69
6 Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson 8,64
7 Skutull frá Hafsteinsstöðum Sara Sigurbjörnsdóttir 7,41
8 Cortes frá Ármóti Sigursteinn Sumarliðason 0,58

A úrslit – A flokkur – áhugamanna
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Völundur frá Skálakoti Sanne Van Hezel 8,54
2 Freyr frá Hraunbæ Sigurbjörn J Þórmundsson 8,34
3 Tónn frá Breiðholti í Flóa Kristín Ingólfsdóttir 8,31
4 Forni frá Flagbjarnarholti Telma Tómasson 8,29
5 Hringur frá Fákshólum Ólafur Guðni Sigurðsson 8,28
6 Þór frá Minni-Völlum Sigurður Ævarsson 8,05
7 Nagli frá Grindavík Sigurður Gunnar Markússon 7,31
8 Gefjun frá Grímarsstöðum Lýdía Þorgeirsdóttir 6,96

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link