Glæsilegt ísmót í Svíþjóð
Svíar ætla að halda glæsilegt ísmót í lok mars á næsta ári en þangað verður boðið 20 af bestu knöpum íslandshestaheimsins. Mótið verður haldið í Kungsbacka Icehall sem er á vesturströnd Svíþjóðar. Knapar sem munu taka þátt eru meðal annarra Jóhann Rúnar Skúlason, Julie Christiansen, Nils Christian Larsen, Vignir Jónasson og fleiri;
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um viðburðinn á heimasíðunni www.toltonice.com
Viðburðurinn snýst ekki einungis um knapa og hesta á svellinu heldur verður íslenska hestinum gerð góð skil þar sem verður fjöldinn allur af kynningar- og sölubásum verða í höllinnni og einblýnt er á íslenska hestinn og vörur og þjónustu tengdum honum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH