Gljátoppur frá Miðhrauni á leið til Svíþjóðar

  • 9. febrúar 2021
  • Fréttir

Gljátoppur frá Miðhrauni, knapi er Máni Hilmarsson.

Þær fréttir hafa borist að stóðhesturinn Gljátoppur frá Miðhrauni sé að bætast í hóp þeirra íslensku stóðhesta sem hafa haldið á vit nýrra verkefna á meginlandinu.

Gljátoppur sem vakti ungur talsverða athygli fyrir vasklega framgöngu er fimm vetra gamall, undan Álfarni frá Syðri-Gegnishólum og Sölku frá Stuðlum. Hann hlaut í aðaleinkunn 8,21 síðasta vor, skeiðlaus en aðaleinkunn hans án skeiðs er 8,59. Sýnandi var Máni Hilmarsson en hann er jafnframt annar af eigendum hestsins. Gljátoppur heldur utan til Svíþjóðar nú í vikunni en nýir eigendur hans ásamt Mána eru VM Islandshästar AB.

Gísli Guðmundsson, fyrri eigandi Gljátopps ásamt Mána, sagði söluna hafa átt sér nokkurn aðdraganda en þar sem að Máni hafi sjálfur flutt til Svíþjóðar síðasta haust hefði þetta verið rökrétt framhald og að Gljátoppur verði í frábærum höndum á sínu nýja heimili.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link