Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Glódís og Vikar sigurvegarar í tölti

  • 27. mars 2026
  • Fréttir

Glódís og Vikar. Ljósmynd: Carolin Giese

Gífurleg spenna áfram í einstaklings- og liðakeppni.

Þau voru mögnuð tilþrifin í töltkeppni Meistaradeildar Líflands á lokakvöldi deildarinnar sem nú er í gangi. Framundan er svo keppni í flugskeiði sem mun skera úr um hverjir standa uppi sem heildarsigurvegarar í einstaklings- og liðakeppni. Allt í þráðbeinni á EiðfaxaTV.

Glódís og Vikar sigra töltið

Að lokinni forkeppni var það Glódís Rún Sigurðardóttir sem efst stóð á Vikari frá Austurási með 8,57, í öðru sæti var Jakob Svavar á Skarpi frá Kýrholti með 8,43 í þriðja sætinu var svo Jón Ársæll á Spörtu frá Eystra-Fróðholti með 8,33 en það er mögnuð einkunn í fyrstu töltkeppni. Þá var það stjörnuparið Flosi Ólafsson og Brynja Kristinsdóttir á systkinunum Sunnu og Röðli frá Haukagili í Hvítársíðu, Brynja með 7,97 í einkunn og Flosi með 7,93.

A-úrslitin voru algjört augnakonfekt og þar fór saman frábærir knapar á glæsilegum hrossum. Glódís Rún hélt efsta sætinu á Vikari og hluat í einkunn 9,00, Jakob Svavar og Skarpur urðu í 2.sæti með 8,83 og í því þriðja Flosi Ólafsson og Röðull með 8,50.

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Glódís Rún Sigurðardóttir Vikar frá Austurási 9,00
2 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 8,83
3 Flosi Ólafsson Röðull frá Haukagili Hvítársíðu 8,50
4 Jón Ársæll Bergmann Sparta frá Eystra-Fróðholti 8,33
5 Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu 8,06

Til B-úrslita kepptu þau Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Flóvent frá Breiðstöðum, Þorgeir Ólafsson á Aspari frá Hjarðartúni, Helga Una Björnsdóttir á Hrefnu frá Fákshólum og Árni Björn Pálsson á Krika frá Krika. Þau Ásmundur, Aðalheiður og Árni Björn voru þrír efstu knaparnir í einstaklingskeppni fyrir kvöldið og náðu sér í mikilvæg stig í þeirri keppni með því að komast í úrslit.

Það fór svo að Ásmundur Ernir og Hlökk stóðu efst í B-úrslitum með 8,78 í einkunn

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 8,78
7 Þorgeir Ólafsson Aspar frá Hjarðartúni 8,50
8 Helga Una Björnsdóttir Hrefna frá Fákshólum 8,17
9 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 7,67
10 Árni Björn Pálsson Kriki frá Krika 7,50

Lið Hrímnir/Hest.is var stigahæsta liðið í töltkeppni og náði í mikilvæg stig!

Ásmundur í forystu fyrir skeiðið

Ásmundur heldur þar með forystu í einstaklingskeppninni fyrir flugskeiðið með 43,5 stig. Jöfn í 2.-3 sæti eru þau Aðalheiur Anna og Jakob Svavar með 39 stig í fjórða sæti er Árni Björn Pálsson með 36 stig og í því fimmta Jón Ársæll Bergmann með 33 stig.

Ásmundur Ernir Snorrason 43.5
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 39
Jakob Svavar Sigurðsson 39
Árni Björn Pálsson 36
Jón Ársæll Bergmann 33

Í liðakeppninni er það lið Hjarðartúns sem er nú í forystu með 247,5 stig og skammt á eftir er lið Top Reiter/Sumarliðabæjar með 241 stig.

Það verður því nú barist fyrir öllum stigum í flugskeiðinu og spennandi að fylgjast með hvernig fer að lokum.

Staðan í liðakeppnin

Hjarðartún 247.5
Top Reiter/Sumarliðabær 241
IB bílar 185.5
Hrímnir / Hest.is 184.5
Hestvit / Árbakki 172
Ganghestar / Margrétarhof 165.5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link