Glódís Rún efst í fjórgangi (V1) ungmenna
Nú var að ljúka A-úrslitum í fjórgangi (V1) ungmennaflokki. Glódís Rún Sigurðardóttir stóð uppi sem sigurvegari með töluverðum yfirburðum og hlaut í einkunn 7,43. í öðru sæti varð Katla Sif Snorradóttir á Gusti frá Stykkishólmi með 7,20 í einkunn og í því þriðja varð Reykjavíkurmeistarinn í þessum flokki Ylfa Guðrún Svafarsdóttir á Prins frá Skúfslæk með 6,97 í einkunn.
Glódís Rún varð einnig samanlagður fjórgangssigurvegari í ungmennaflokki.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Glódís Rún Sigurðardóttir / Glymjandi frá Íbishóli | 7,43 |
| 2 | Katla Sif Snorradóttir / Gustur frá Stykkishólmi | 7,20 |
| 3 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Prins frá Skúfslæk | 6,97 |
| 4 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir / Skálmöld frá Eystra-Fróðholti | 6,93 |
| 5 | Ólöf Helga Hilmarsdóttir / Katla frá Mörk | 6,83 |
| 6 | Svanhildur Guðbrandsdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri | 6,63 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV