Glódís Rún knapi ársins 2023 hjá Sleipni

  • 18. mars 2024
  • Fréttir
Uppskeruhátíð hestamannafélagsins Sleipnis var um helgina

Þann 16.mars var haldin uppskeruhátíð hestamannafélagsins Sleipni á Þingborg. Þar hittust félagsmenn Sleipnis og heiðruðu félagsmenn sem áttu framúrskarandi árangur á árinu 2023.

Var Glódís Rún Sigurðardóttir valin knapi ársins og íþróttaknapi ársins en eftirtalin verðlaun voru veitt á uppskeruhátíðinni.

  • Besti árangur í 100 m skeiði: Sigursteinn Sumarliðason á Krókus frá Dalbæ
  • Besti árangur í 150 m skeiði: Ívar Örn Guðjónsson og Buska frá Sauðárkróki
  • Besti árangur í 250 m skeiði: Árni Sigfús Birgisson og Dimma frá Skíðbakka I
  • Æskulýðsverðlaun: Svandís Atkien Sævarsdóttir
  • Knapi ársins í flokki áhugamanna: Soffía Sveinsdóttir
  • Gæðingaknapi ársins: Sigursteinn Sumarliðason á Liðsauka frá Áskoti
  • Íþróttaknapi ársins: Glódís Rún Sigurðardóttir
  • Klárhestaskjöldurinn fyrir efsta hest í B-flokki gæðinga: Bjarnfinnur frá Áskoti, eigandi Jakob Þórarinsson
  • Sleipnisskjöldurinn fyrir efsta hest í A-flokki gæðinga: Kolbeinn frá Hrafnsholti, eigendur Jónas Már Hreggviðsson og Elísabet Gísladóttir.
  • Ræktendur ársins: Árni Sigfús Birgisson og Davíð Sigmarsson fyrir Djáknar frá Selfossi
  • 2 félagar heiðrarðir sem félagar ársins: Magnús Benediktsson og Bryndís Arnardóttir

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar