Glódís Rún og Kamban efst
Þá er töltinu lokið á Íslandsmótinu og við tekur slaktaumatölt. Glódís Rún Sigurðardóttir er efst í tölti barna á Kamban frá Húsavík. Þau hlutu 6,63 í einkunn. Í öðru sæti var Rúna Tómasdóttir á Brimli frá Þúfu í Landeyjum með einkunnina 6,57 og í því þriðja voru jafnir þeir Viktor Aron Adolfsson á Sólveigu frá Feti og Arnar Máni Sigurjónsson á Draumi frá Hjallanesi með einkunnina 5,93.
Niðurstöður úr forkeppni í tölti barna:
Sæti Keppandi
1 Glódís Rún Sigurðardóttir / Kamban frá Húsavík 6,63
2 Rúna Tómasdóttir / Brimill frá Þúfu í Landeyjum 6,57
3-4 Viktor Aron Adolfsson / Sólveig frá Feti 5,93
3-4 Arnar Máni Sigurjónsson / Draumur frá Hjallanesi 1 5,93
5 Annika Rut Arnarsdóttir / Gáta frá Herríðarhóli 5,80
6 Katrín Eva Grétarsdóttir / Flinkur frá Vogsósum 2 5,77
7 Annabella R Sigurðardóttir / Dynjandi frá Hofi I 5,73
8 Anton Hugi Kjartansson / Sprengja frá Breiðabólsstað 5,67
9-10 Þórunn Ösp Jónasdóttir / Ösp frá Litlu-Sandvík 5,43
9-10 Kristófer Darri Sigurðsson / Krummi frá Hólum 5,43
11 Svanhildur Guðbrandsdóttir / Stormur frá Egilsstaðakoti 5,37
12 Þorvaldur Ingi Elvarsson / Saga frá Búð 2 5,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH