Glódís Rún tilnefnd í kjörinu um íþróttamanneskju Árborgar 2023

  • 19. desember 2023
  • Fréttir
Kosning íþróttamanneskjum Árborgar 2023

Fræðslu- og frístundanefnd Árborgar stendur fyrir kjöri á íþróttamanneskjum Árborgar hvert ár. Í ár eru 10 konur og 14 karlar tilnefnd til að hljóta titilinn.

Sjá nánar hvaða tilnefningar bárust.

Síðustu ár höfum verið stuðst við netkosningu sem reynst hefur vel. Þessi nýjung gefur öllum áhugasömum tækifæri til að taka þátt og hafa áhrif á hverjir eru valdir íþróttakona og -karl Árborgar 2023.

Árangur Glódísar á árinu 2023:
Heimsmeistari í fimmgangi ungmenna á Sölku frá Efri-Brú og annað sæti í forkeppni yfir alla keppendur
Íslandsmeistari í fimmgangi ungmenna á Sölku frá Efri-Brú, forkeppni 7,30 og úrslit 7,67
Íslandsmót: Úrslit í bæði fjórgangi og slaktaumatölti á Breka frá Austurási
Meistaradeild Líflands: 2. Sæti fimmgangur (7,63) Salka frá Efri-Brú – 6. Sæti tölt, Drumbur frá
Víðivöllum-fremri
Íþróttamót Sleipnis: 2. Sæti fjórgangur Breki frá Austurási Íþróttamót Geysis: 1. Sæti slaktaumatölt,
forkeppni (7,77) úrslit (7,63) Breki frá Austurási
Íþróttamót Geysis: Fimmgangur forkeppni (7,00) Salka frá Efri-Brú – tók ekki þátt í úrslitum
Íþróttamót geysis: Tölt forkeppni (7,70) Drumbur frá Víðivöllum-fremri – tók ekki þátt í úrslitum
Reykjavíkurmeistaramót: 1. Sæti fimmgangur (7,30) Salka frá Efri-Brú
Reykjavíkurmeistaramót: Úrslit í bæði fjórgangi og slaktaumatölti á Breka frá Austurási
Steirische meisterscahften: Fimmgangur (7,40) forkeppni – Sproti frá Innri-Skeljabrekku

Netkosningin er opin út miðvikudaginn 20. desember nk. og munu úrslit hennar gilda 20% á móti atkvæðum valnefndarinnar þannig að sú íþróttamanneskja sem endar með flest atkvæði fær 18 stig, næst flest atkvæði gefa 15 stig, þriðja sætið gefur 12 stig, fjórða sætið gefur 9 stig og fimmta sæti 6 stig.

Hér má lesa um árangur þeirra sem tilnefndir eru.

Hér er tengill í kosninguna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link