Góð ráðstöfun!-

  • 8. nóvember 2010
  • Fréttir
Góð ráðstöfun!-

Eins og einhverjum er kunnugt um, hafa undanfarin ár, eða síðan að stóðhesturinn Gustur frá Hóli hætti að geta fyljað,…

staðið einhverjar deilur meðal eigenda um örlög klársins. Eigendur voru þrjú hrossaræktarsamtök, Austlendingar, Eyfirðingar ásamt Þingeyingum  og Vestlendingar. Árið 2009 eignast svo Austlendingar hlut Vestlendinga og eiga þá orðið 2/3 hluta í klárnum á móti Eyfirðingum.

Gustur hefur um nokkurt skeið verið í umhirðu fjölskyldunnar á Dýrfuinnustöðum í Skagafirði og hefur Ingunn Ingólfsdóttir og systkyni hennar þau Björg og Trausti annast hestinn en Ingunn hefur notað hann sem reiðhest. Þau Ingunn og Gustur hafa náð vel saman eins og menn sáu tildæmis á sýningu í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í fyrravetur og á myndum sem fylgdu grein Bjarna Þorkelssonar um Gust í 5. Tölublaði Eiðfaxa fyrr á þessu ári.
Nú hafa orðið þau týðindi að Hrossaræktarsamband Austurlands hafa gefið börnunum á Dýrfinnustöðum sinn hlut í Gusti þannig að eigendur í dag eru Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga sem eiga 1/3 hluta og börnin á Dýrfinnustöðum sem eiga þá 2/3 hluta hestsins.
Spennandi verður að fylgjast með framhaldinu. Fylgir hér með bréf sem Hrossaræktarsamtök Austurlands sendu foreldrum barnanna á Dýrfinnustöðum áður ern eigendaskipti fóru fram:

Ágætu hjón
 Unnur og Ingólfur
 Ég rita ykkur þessar línur vegna Gusts karlsins frá Hóli
 Vil ég fyrst þakka ykkur fyrir þá alúð og umhyggju sem þið og þá sértaklega dætur ykkar hafa sýnt hestinum á meðan hann hefur verið í ykkar umsjá.
 Það hefur glatt okkur mjög og ég vona meðeigendur okkar fari líka að sjá hvað klárnum líður greynilega vel hjá ykkur.
 Það hefur verið einlæg ósk þeirra sem er umhugað um að Gustur hafi það sem best í ellinni að hann meigi eiga sem best „ævikvöld“ og ég sé ( sem ég vissi reyndar fyrir) að þarna sé kominn staðurinn fyrir hann.
 Því ákvað stjórn Hr.Aust. að færa systkynunum á Dýrfinnastöðum sinn hlut (sem er 2/3 hlutar hestsins) að gjöf eins og það er bókað í stjórnarfundargerð.
 Vil ég með þessum línum biðja ykkar foreldrana um að veita okkur þann heiður og leyfa  að þessi stjórnarsamþykkt nái fram að ganga. En þar sem þetta eru börn tel ég rétt að leita samþykkis ykkar  fyrir gjörningnum
  8.des s.l. sagði Hr.Aust. upp samkomulagi um hestinn frá árinu 2000 og öllum viðaukum við það og óskaði eftir að gert yrði nýtt samkomulag, en því miður hefur meðeigandi okkar sem er Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga ekki séð sér enn fært að mæta til að gera nýtt samkomulag. Mun það því koma í ykkar hlut að gera samkomulag um hestinn sé þess óskað
 Hesturinn mun því verða gefinn algjörlega hvaðalaust að okkar hálfu en gamann þætti okkur að fá að fylgjast með honum hér eftir sem hingað til.
  Vil ég því endurtaka ósk mína um að þið leyfið okkur að færa börnum ykkar okkar hlut í hestinum að gjöf og bið ykkur að senda mér kennitölur barnana því til staðfestingar svo eigendaskipti megi fara fram. Við munum afhenda afsalið formlega síðar
 f.h. Hr.Aust.
 Jósef Valgarð

 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link